„Ásbjörn Ragnar Ásbjörnsson“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Ásbjörn Ragnar Ásbjörnsson''' stýrimaður fæddist 19. janúar 1917 á Bifröst og fórst 29. júní 1941. <br> Foreldrar hans voru Ásbjörn Pálsson frá Akranesi,...) |
m (Verndaði „Ásbjörn Ragnar Ásbjörnsson“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 30. október 2021 kl. 13:51
Ásbjörn Ragnar Ásbjörnsson stýrimaður fæddist 19. janúar 1917 á Bifröst og fórst 29. júní 1941.
Foreldrar hans voru Ásbjörn Pálsson frá Akranesi, sjómaður, f. 2. september 1880, d. 14. október 1952, og kona hans Rannveig Ólafsdóttir frá Miðbýli í Akraneshreppi, húsfreyja, f. 27. apríl 1884 í Háuhjáleigu þar, d. 19. júlí 1941.
Börn Rannveigar og Ásbjörns:
1. Kári Coghill Ásbjörnsson þjónn, f. 2. ágúst 1908, d. 11. september 1932, ókv.
2. Úlla Jóhanna Dollý Ásbjörnsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 4. júní 1910 í Stakkahlíð, d. 25. febrúar 1968. Maður hennar var Tyrfingur Þórðarson vélstjóri.
3. Hlöðver Ólafur Ásbjörnsson, f. 31. maí 1912 í Götu, d. 10. maí 1913.
4. Sigríður Pálma Ásbjörnsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 28. september 1913 á Gjábakka, d. 4. júlí 1986. Maður hennar var Jóhannes Guðmundsson vélstjóri.
5. Hulda Fanný Ásbjörnsdóttir húsfreyja í Belgíu, f. 22. janúar 1915 á Jaðri, d. 1969. Maður hennar var Lucane Eduware siglingafræðingur.
6. Ásbjörn Ragnar Ásbjörnsson, f. 19. janúar 1917 á Bifröst, fórst á stríðsárunum, ókv.
7. Hlöðver Óliver Ásbjörnsson stýrimaður á Dettifossi, f. 21. maí 1918 á Bjargi í Bakkafirði, d. 21. febrúar 1945, ókv.
8. Ólafur Hafsteinn Ásbjörnsson húsgagnabólstrari í Kaupmannahöfn, f. 22. júlí 1920 í Reykjavík. Kona hans var Guðný Hreiðarsdóttir.
Barn Ásbjörns og Helgu Árnadóttur:
9. Þorsteinn Arnberg Guðni Ásbjörnsson verkstjóri, yfirprentari í Reykjavík, f. 21. ágúst 1904 í Reykjavík, d. 13. júlí 1971. Kona hans Sæunn Jófríður Jóhannesdóttir.
Ásbjörn var með foreldrum sínum á Bakkafirði 1917, á Grettisgötu 40 1920.
Ásbjörn var stýrimaður á kaupskipinu Heklu suður af Grænlandi á leið til Halifax, þegar hún var skotin niður 29. júní 1941. Hann fórst ásamt 13 öðrum skipverjum, ókvæntur og barnlaus.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Morgunblaðið 23. september 2001. Hildarleikur á Hafinu.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.