„Blik 1963/Andvökuhugrenningar“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 85: | Lína 85: | ||
:::::Vonum fyllist lundin. | :::::Vonum fyllist lundin. | ||
:::::::'' | :::::::[[Trausti Eyjólfsson (kennari)|''Trausti Eyjólfsson'']] | ||
[[Mynd: 1963 b 284 B.jpg|500px|ctr]] | [[Mynd: 1963 b 284 B.jpg|500px|ctr]] | ||
Lína 100: | Lína 100: | ||
''Fremri röð frá vinstri:<br> | ''Fremri röð frá vinstri:<br> | ||
''[[Páll Erlendsson]], bifreiðarstjóri, [[Þorsteinn Einarsson]], gagnfræðaskólakennari, og [[Árni Guðmundsson]].<br> | ''[[Páll Erlendsson]], bifreiðarstjóri, [[Þorsteinn Einarsson]], gagnfræðaskólakennari, og [[Árni Guðmundsson]].<br> | ||
''Fremstur stendur [[Trausti Eyjólfsson]], 10 ára, seinna bóndi hér á [[Breiðabakki|Breiðabakka]]. Trausti Eyjólfsson hefur sent Bliki þessi frumortu kvæði. Hið fyrra er ort á Breiðabakka. | ''Fremstur stendur [[Trausti Eyjólfsson (kennari)|Trausti Eyjólfsson]], 10 ára, seinna bóndi hér á [[Breiðabakki|Breiðabakka]]. Trausti Eyjólfsson hefur sent Bliki þessi frumortu kvæði. Hið fyrra er ort á Breiðabakka. | ||
{{Blik}} | {{Blik}} |
Núverandi breyting frá og með 27. september 2021 kl. 17:15
- Ég yrki þetta litla ljóð
- um langa dimma nótt.
- Við brimsins sog og brekahljóð,
- er börnum ekki rótt.
- Þá stormur rýfur land og lög,
- er lund mín myrk og köld.
- Ég heyri drunur, heljar slög.
- Nú hefur myrkrið völd.
- Ég yrki þetta litla ljóð
- Þig ég hræðist, grimmi gnýr,
- sem grípur kverk í hönd,
- og kyrkir menn og mállaus dýr
- og malar niður lönd.
- Ó, hve ég þrái ljós og lit
- og líf með frjórri jörð,
- sumardaga sólarglit
- og silfurtæran fjörð.
- Ó, hve ég þrái ljós og lit
- Þig ég hræðist, grimmi gnýr,
- Ég þrái skjól í skógarlund
- og skyggni um víða sveit.
- Fjólulaut og fífusund
- og fríða hjörð á beit.
- Bleikan akur, blómgva fit
- og berjalyng í mó.
- Lækjarnið og lóuþyt,
- líf og starf í ró.
- Ég þrái skjól í skógarlund
- Breiðabakka í Vm. 1956.
- VIÐ LÍKBÖRUR
- MÓÐUR MINNAR
- VIÐ LÍKBÖRUR
- Móða dökk og mikilúð
- morar yfir lausa flúð.
- Áður bar hún blómaskrúð,
- burtu nú er skolað.
- Aldin, rót og elfting prúð
- allt er niður molað.
- Móða dökk og mikilúð
- Móðan sú er mannlegt böl,
- mæða, sorg og alls kyns kvöl.
- Atar vitin aur og möl,
- ekkert sést þá lengur.
- Áin sú er ógnar svöl,
- illa væður strengur.
- Móðan sú er mannlegt böl,
- ———
- Elskulega móðir mín!
- Mæða var öll ævin þín.
- Oftast þegar sólarsýn
- setti mark á brána,
- ógæfunnar illa trýn
- ýtti þér í ,,ána“.
- Elskulega móðir mín!
- Er nú fokið æviský,
- af er lífsins þunga blý.
- Megi alvalds elskan hlý
- eyða þínum hörmum.
- Í trúnni á Guð ég treysti því
- og tárin strýk af hvörmum.
- Er nú fokið æviský,
- 9/10 - '60.
- VORVÍSA 1961
- Kemur vorið, kuldinn flýr.
- Klæðist skrúði grundin.
- Vangann strýkur vindur hlýr.
- Vonum fyllist lundin.
- Kemur vorið, kuldinn flýr.
- ————
Þessi mynd er tekin suður í Stórhöfða vorið 1938. Kennarar barnaskóla Vestmannaeyja o.fl. eru þar með Aðalsteini heitnum Sigmundssyni, námsstjóra.
Aftari röð frá vinstri:
Karl Guðjónsson, séra Jes A. Gíslason, Halldór Guðjónsson, Victoría Jónsdóttir (leiðr.), Aðalsteinn Sigmundsson, Helgi Þorláksson og Sigríður Árnadóttir.
Fremri röð frá vinstri:
Páll Erlendsson, bifreiðarstjóri, Þorsteinn Einarsson, gagnfræðaskólakennari, og Árni Guðmundsson.
Fremstur stendur Trausti Eyjólfsson, 10 ára, seinna bóndi hér á Breiðabakka. Trausti Eyjólfsson hefur sent Bliki þessi frumortu kvæði. Hið fyrra er ort á Breiðabakka.