„Gylfi Guðnason“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
(1 millibreyting ekki sýnd frá sama notandanum) | |||
Lína 1: | Lína 1: | ||
'''Gylfi Guðnason''' frá [[Vegamót]]um, menntaskólakennari, | '''Gylfi Guðnason''' frá [[Vegamót]]um, menntaskólakennari, fæddist 16. nóv. 1937. Foreldrar hans voru [[Guðni Jónsson (Ólafshúsum)|Guðni Jónsson]], f. 1903 og k.h. [[Anna Eiríksdóttir]], f. 1902.<br> | ||
Gylfi var í [[Gagnfræðaskólinn í Vestmannaeyjum|Gagnfræðaskólanum]] 1950-53. Stúdent varð hann 1957. Hann sat í verkfræðideild Háskóla Íslands 1957-58 og í Háskólanum í Kaupmannahöfn 1958-65 og 1966-69. Fyrri hluta-prófi í stærðfræði, eðlisfræði, stjörnufræði og efnafræði lauk hann 1959 og 1961, meistaraprófi í stærðfræði 1969.<br> | Gylfi var í [[Gagnfræðaskólinn í Vestmannaeyjum|Gagnfræðaskólanum]] 1950-53. Stúdent varð hann 1957. Hann sat í verkfræðideild Háskóla Íslands 1957-58 og í Háskólanum í Kaupmannahöfn 1958-65 og 1966-69. Fyrri hluta-prófi í stærðfræði, eðlisfræði, stjörnufræði og efnafræði lauk hann 1959 og 1961, meistaraprófi í stærðfræði 1969.<br> | ||
Lína 20: | Lína 20: | ||
*Gylfi Guðnason, munnl. heimild. | *Gylfi Guðnason, munnl. heimild. | ||
*Pers.}} | *Pers.}} | ||
{{Æviskrár Víglundar Þórs}} | |||
[[Flokkur: Kennarar]] | [[Flokkur: Kennarar]] | ||
[[Flokkur:Fólk fætt á 20. öld]] | [[Flokkur:Fólk fætt á 20. öld]] | ||
[[Flokkur:Íbúar við Urðaveg]] | [[Flokkur:Íbúar við Urðaveg]] |
Núverandi breyting frá og með 13. febrúar 2021 kl. 14:40
Gylfi Guðnason frá Vegamótum, menntaskólakennari, fæddist 16. nóv. 1937. Foreldrar hans voru Guðni Jónsson, f. 1903 og k.h. Anna Eiríksdóttir, f. 1902.
Gylfi var í Gagnfræðaskólanum 1950-53. Stúdent varð hann 1957. Hann sat í verkfræðideild Háskóla Íslands 1957-58 og í Háskólanum í Kaupmannahöfn 1958-65 og 1966-69. Fyrri hluta-prófi í stærðfræði, eðlisfræði, stjörnufræði og efnafræði lauk hann 1959 og 1961, meistaraprófi í stærðfræði 1969.
Á unglingsárum var Gylfi liðtækur íþróttamaður í Eyjum, einkum í frjálsum íþróttum.
Gylfi var leiðbeinandi í dæmareikningi byrjenda við Háskólann í Kaupmannahöfn 1961-65 og 1966-68. Hann var kennari við Menntaskólann í Reykjavík 1965-66 og frá 1969. Stundakennari við Menntakólann við Tjörnina var hann 1969-70, við Háskóla Íslands 1975-78.
Kona (1. febr. 1964): Hugrún Gunnarsdóttir kennari, f. 29. okt. 1937 í Reykjavík. Foreldrar hennar voru Gunnar tollvörður, búsettur í Kópavogi, f. 10. nóvember 1907, d. 12. nóvember 1996, Eggertsson bónda í Vestri-Leirárgörðum í Leirársveit í Borgarfirði, Gíslasonar og kona Gunnars, Þrúður húsfreyja, f. 2. janúar 1907, d. 21. október 2001, Guðmundar kennara Jónssonar.
Barn þeirra: Gunnar, f. 17. jan. 1971.
Í Bliki 1952 er að finna vísu sem Gylfi setti saman eftir að hafa hlustað á hugvekju skólastjóra um nauðsyn útiveru og gönguferða:
- Ef þú iðkar innistörf
- áttu að fara í göngu.
- Á því hefurðu þreyttur þörf,
- það vissi ég fyrir löngu.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Kennaratal á Íslandi. Reykjavík: Prentsmiðjan Oddi H.F., 1958-1988.
- Gylfi Guðnason, munnl. heimild.
- Pers.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.