„Tanginn“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
2.947 bætum bætt við ,  24. febrúar 2017
ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
 
(15 millibreytingar ekki sýndar frá 7 notendum)
The content of the old revision is missing or corrupted.
Lína 1: Lína 1:
[[Mynd:Fiskbreiðsla.JPG|thumb|270px|Fiskbreiðsla]]


Húsið '''Tanginn''' stóð við [[Strandvegur|Strandveg]] 46. Það var verslun [[Gunnar Ólafsson|Gunnars Ólafssonar]] en var rifin þegar verslun reis við hliðina. Þar er verslunarhúsnæði enn þann dag í dag.
== Verslun ==
[[Mynd:Tanginn.jpg|thumb|270px|Tanginn um 1880. Efst er sölubúð og íbúðarhús. Nýja húsið snýr norður og suður en salthúsið og lifrarbræðslan er nyrst.]]
Lóðina fékk myllusmiðurinn [[J.J.F. Brick|Johan Julius Frederik Birck]],  fyrir verslunarrekstur og stofnsetti verslunina '''Juliushaab''' árið 1845. Í daglegu tali var búðin nefnd ''Tangabúð''. Verslunina rak hann aðeins í nokkur ár og árið 1851 keypti N.N. Bryde verslunina handa tvítugum syni sínum, [[J.P.T. Bryde]]; jafnan kallaður Pétur Bryde. Árið 1879 lést faðir Péturs og erfði hann þá verslun föður síns, Garðsverzlun. Ekki var leyfilegt að einn einstaklingur ræki tvær verslanir og því hóf verslunarstjórinn [[Gísli Engilbertsson (eldri)|Gísli Engilbertsson]] leigurekstur á Tanganum. Gísli rak verslunina til ársins 1893 en Pétur hafði gefið syni sínum verslunina árið 1889. Við versluninni tók, árið 1910, hópur manna við rekstrinum, [[Pétur Thorsteinsson]], [[Gunnar Ólafsson (kaupmaður)|Gunnar Ólafsson]] og [[Jóhann Þ. Jósefsson]]. Verslunina nefndu þeir '''Gunnar Ólafsson & co.''' Þrátt fyrir að fyrirtækið bæri nafnið Gunnar Ólafsson og Co. þá gekk verslunin alltaf undir nafninu Tanginn.
[[Mynd:Garðurinn.jpg|thumb|270px|Tangahúsið frá 1910. Tangahúsið frá 1846-1849 til vinstri]]
[[Mynd:Tib (92).jpg|thumb|270px|Verslun Gunnars Ólafssonar]]
Verslunarrekstur var aðal viðfangsefni fyrirtækisins en það kom víða við og rak jafnframt versluninni útgerð, umboðssölu og umboð fyrir skipafélög. Fyrirtækið var með umboð fyrir Eimskipafélagið í Eyjum til ársins 1990 og tók þá við umboði fyrir Sambandið og Ríkisskip.
==Nýi Tanginn==
Fram til ársins 1979 var verslunin rekin í gamla húsinu sem rekstur hennar hófst í árið 1910, en 6. desember það ár var flutt í nýbyggt húsnæði sem byggt var við hlið gömlu verslunarinnar. Árið 1985 var nýja verslunarhúsnæðið stækkað í norður og öll starfsemi fluttist þá úr gamla húsinu sem síðar var rifið og þar gerð bílastæði fyrir viðskiptavini verslunarinnar.
Verslunin Krónan er nú til húsa í Tanganum.
== Helstu atriði í eigenda- og íbúasögu ==
* [[Erlendur Pétursson]] (Elli Pé) byggði húsið
== Myndir ==
<Gallery>
Mynd:Tib (107).jpg
</gallery>
{{Heimildir|
* Jóhann Gunnar Ólafsson. Verslunarstaðir í Vestmannaeyjum. ''Gamalt og nýtt.'' Reykjavík. Víkingsprent
* ''Strandvegur''. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu ''Húsin í götunni''. Vestmannaeyjar, 2004.}}
[[Flokkur:Hús]]
[[Flokkur:Verslun]]
[[Flokkur:Strandvegur]]

Leiðsagnarval