„Yngvi Þorkelsson“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
(2 millibreytingar ekki sýndar frá 2 notendum) | |||
Lína 1: | Lína 1: | ||
Yngvi Þorkelsson gat sér gott frægðarorð í Ameríku fyrir mikið starf og listrænt í þágu leiklistarinnar. Yngvi fann sjálfan sig í þeim efnum ef svo mætti segja á leiksviði [[Leikfélag Vestmannaeyja|Leikfélags Vestmannaeyja]], Yngvi fæddist í Reykjavík en ólst upp í Vestmannaeyjum, sonur | Yngvi Þorkelsson gat sér gott frægðarorð í Ameríku fyrir mikið starf og listrænt í þágu leiklistarinnar. Yngvi fann sjálfan sig í þeim efnum ef svo mætti segja á leiksviði [[Leikfélag Vestmannaeyja|Leikfélags Vestmannaeyja]], Yngvi fæddist í Reykjavík en ólst upp í Vestmannaeyjum, sonur Þorkels Ólafssonar steinsmiðs í Reykjavík og [[Jóhanna Sigríður Guðmundsdóttir (Batavíu)|Jóhönnu Guðmundsdóttur]]. | ||
Yngvi fór vestur til Seattle á Kyrrahafsströnd vorið 1926 en áður hafði hann dvalist nokkra mánuði í Kanada og meðal annars lagt þar stund á enskunám. Á Kyrrahafsströndinni varði hann öllum tómstundum sínum til náms, en vann annars öll störf sem buðust. Honum var leiklistin ríkust í huga. | Yngvi fór vestur til Seattle á Kyrrahafsströnd vorið 1926 en áður hafði hann dvalist nokkra mánuði í Kanada og meðal annars lagt þar stund á enskunám. Á Kyrrahafsströndinni varði hann öllum tómstundum sínum til náms, en vann annars öll störf sem buðust. Honum var leiklistin ríkust í huga. | ||
Lína 7: | Lína 7: | ||
Yngvi stundaði nám í 4 ár við listaháskólann The Comich School í Seattle sem var þá talinn einna bestur sinnar tegundar í Ameríku. Þaðan útskrifaðist hann í júní 1933 með þann vitnisburð að hann teldist fjölhæfasti nemandi skólans. Hann hlaut hæstu einkunn í leiklist árið 1932 og styrki hlaut hann úr tveimur sjóðum. | Yngvi stundaði nám í 4 ár við listaháskólann The Comich School í Seattle sem var þá talinn einna bestur sinnar tegundar í Ameríku. Þaðan útskrifaðist hann í júní 1933 með þann vitnisburð að hann teldist fjölhæfasti nemandi skólans. Hann hlaut hæstu einkunn í leiklist árið 1932 og styrki hlaut hann úr tveimur sjóðum. | ||
Jóhanna, móðir Yngva, var hálfsystir [[Friðrik Guðmundsson|Friðriks Guðmundssonar]] verkamanns í [[Batavía|Batavíu]]. | Jóhanna, móðir Yngva, var hálfsystir [[Friðrik J. Guðmundsson (Batavíu)|Friðriks Guðmundssonar]] verkamanns í [[Batavía|Batavíu]]. | ||
{{Heimildir| | {{Heimildir| | ||
* Þorsteinn Þ. Víglundsson. ''[[Blik]], ársrit Vestmannaeyja''. 1965.}} | * [[Þorsteinn Þ. Víglundsson]]. ''[[Blik]], ársrit Vestmannaeyja''. 1965.}} | ||
[[Flokkur:Listamenn | [[Flokkur:Listamenn]] | ||
Núverandi breyting frá og með 30. október 2016 kl. 17:48
Yngvi Þorkelsson gat sér gott frægðarorð í Ameríku fyrir mikið starf og listrænt í þágu leiklistarinnar. Yngvi fann sjálfan sig í þeim efnum ef svo mætti segja á leiksviði Leikfélags Vestmannaeyja, Yngvi fæddist í Reykjavík en ólst upp í Vestmannaeyjum, sonur Þorkels Ólafssonar steinsmiðs í Reykjavík og Jóhönnu Guðmundsdóttur.
Yngvi fór vestur til Seattle á Kyrrahafsströnd vorið 1926 en áður hafði hann dvalist nokkra mánuði í Kanada og meðal annars lagt þar stund á enskunám. Á Kyrrahafsströndinni varði hann öllum tómstundum sínum til náms, en vann annars öll störf sem buðust. Honum var leiklistin ríkust í huga.
Árið 1928 keypti hann sér einkakennslu í framsögu og leiklist. Síðan lá leið hans á amerísk leiksvið. Jafnframt leikstarfinu í amerískum leikhúsum starfaði Yngvi mikið í félagslífi landa sinna þar vestra. Í einu Vesturheimsblaðinu segir um þennan Vestmannaeying: Hann nýtur mikilla vinsælda í stöðu sinni og starfi. Það stafar ekki aðeins af hugkvæmni hans og fjölhæfni í öllu, sem lýtur að leiklist, leiksviðsgerð, leikaragervum og margþættum öðrum undirbúningi leiksýninganna, heldur og ekki síst persónan sjálf, sérstök prúðmennska og jafnvægi í skapgerð. Sjálfur er hann góður leikari.
Yngvi stundaði nám í 4 ár við listaháskólann The Comich School í Seattle sem var þá talinn einna bestur sinnar tegundar í Ameríku. Þaðan útskrifaðist hann í júní 1933 með þann vitnisburð að hann teldist fjölhæfasti nemandi skólans. Hann hlaut hæstu einkunn í leiklist árið 1932 og styrki hlaut hann úr tveimur sjóðum.
Jóhanna, móðir Yngva, var hálfsystir Friðriks Guðmundssonar verkamanns í Batavíu.
Heimildir
- Þorsteinn Þ. Víglundsson. Blik, ársrit Vestmannaeyja. 1965.