„Margrét Þorbjörnsdóttir (Sjólyst)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Margrét Þorbjörnsdóttir''' húskona í Sjólyst, síðar húsfreyja í Selkirk í Kanada fæddist 17. september 1853 í Voðmúlastaða-Austurhjáleigu í A-Landeyjum og l...) |
Ekkert breytingarágrip |

(1 millibreyting ekki sýnd frá sama notandanum) | |||
Lína 13: | Lína 13: | ||
Maður Margrétar, (25. maí 1884), var [[Jón Ólafsson (Sjólyst)|Jón Ólafsson]] húsmaður í Sjólyst, f. 26. apríl 1851 á Syðri-Steinsmýri í Meðallandi, d. 12. febrúar 1948 í Selkirk í Manitoba í Kanada.
| Maður Margrétar, (25. maí 1884), var [[Jón Ólafsson (Sjólyst)|Jón Ólafsson]] húsmaður í Sjólyst, f. 26. apríl 1851 á Syðri-Steinsmýri í Meðallandi, d. 12. febrúar 1948 í Selkirk í Manitoba í Kanada.

Barn þeirra í Eyjum var
| Barn þeirra í Eyjum var

1. [[Guðmundur Jónsson Ólafsson]], f. 12. október 1883, d. 1947. | 1. [[Guðmundur Jónsson Ólafsson]], f. 12. október 1883, d. 1947.

Börn Vestra:
| Börn Vestra:

2. Ólafur Jónsson Ólafsson í Vancouver.
| 2. Ólafur Jónsson Ólafsson í Vancouver.

Núverandi breyting frá og með 15. febrúar 2016 kl. 21:25
Margrét Þorbjörnsdóttir húskona í Sjólyst, síðar húsfreyja í Selkirk í Kanada fæddist 17. september 1853 í Voðmúlastaða-Austurhjáleigu í A-Landeyjum og lést 1. maí 1959 í Kanada.
Foreldrar hennar voru Þorbjörn Jónsson bóndi og formaður við Landeyjasand, f. 24. maí 1810 á Brekkum í Hvolhreppi, d. 22. apríl 1901 á Seljalandi u. Eyjafjöllum, og síðari kona hans Guðrún Sigurðardóttir húsfreyja, f. 6. ágúst 1820 á Núpi u. Eyjafjöllum, d. 13. mars 1888 á Tjörnum þar.
Systur Guðrúnar móður Margrétar voru
1. Guðrún Sigurðardóttir eldri, húsfreyja á Kirkjubæ, Presthúsum og í Hólshúsi, f. 1. janúar 1827, d. 13. maí 1882.
2. Járngerður Sigurðardóttir húsfreyja í Draumbæ, Túni og Stóra-Gerði, síðar í Fagurlyst, f. 17. september 1830, d. 23. desember 1876.
3. Guðrún Sigurðardóttir yngri, húsfreyja, f. 6. apríl 1834, d. 31. ágúst 1897 í Vesturheimi.
Margrét var með foreldrum sínum í Voðmúlastaða-Austurhjáleigu 1860, í Kirkjulandshjáleigu 1870 og 1880.
Þau Jón komu bæði frá Kirkjulandi í A-Landeyjum að Sjólyst 1882, hann húsmaður, hún bústýra. Þau voru í húsmennsku í Sjólyst 1882-1884, hún ,,honum þjónandi,“ skrifar presturinn 1883. Þau giftu sig 1884 og fluttust til Kanada og settust að í Árnesbyggð á Nýja Íslandi, en bjuggu síðan í Selkirk.
Guðmundur fæddist þeim 1883. Hann fór vestur með þeim.
Maður Margrétar, (25. maí 1884), var Jón Ólafsson húsmaður í Sjólyst, f. 26. apríl 1851 á Syðri-Steinsmýri í Meðallandi, d. 12. febrúar 1948 í Selkirk í Manitoba í Kanada.
Barn þeirra í Eyjum var
1. Guðmundur Jónsson Ólafsson, f. 12. október 1883, d. 1947.
Börn Vestra:
2. Ólafur Jónsson Ólafsson í Vancouver.
3. Jóhann Maríus Jónsson, d. mánaðargamall.
4. Jóhann Jónsson Ólafsson tinsmiður í Selkirk.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Morgunblaðið 3. nóvember 1953, bls. 11 og 12.
- Prestþjónustubækur.
- Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.