„Óskar Jónsson (Hólum)“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
(Ný síða: '''Óskar Jónsson''' sjómaður í Hólum fæddist 8. maí 1919 og drukknaði 15. september 1940.<br> Foreldrar hans voru [[Jón Þórðarson (Hólum)|Jóns Þórðarson...) |
m (Verndaði „Óskar Jónsson (Hólum)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 27. október 2015 kl. 21:33
Óskar Jónsson sjómaður í Hólum fæddist 8. maí 1919 og drukknaði 15. september 1940.
Foreldrar hans voru Jóns Þórðarson sjómaður og útgerðarmaður í Hólum, Hásteinsvegi 14, f. 24. júlí 1887, d. 16. júní 1948, og kona hans Guðbjörg Ágústa Sigurðardóttir húsfreyja, f. 23. ágúst 1887, d. 21. apríl 1974.
Óskar fæddist í Hólum og ólst þar upp.
Hann var háseti á Lunda VE-141 15. september 1940, þegar hann fór út með dragnótinni og drukknaði.
Óskar var ókvæntur og barnlaus.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Minningarrit. Páll Oddgeirsson. Vestmannaeyjum 1952.
- Prestþjónustubækur.