Jón Þórðarson (Hólum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jón Þórðarson sjómaður, útgerðarmaður í Hólum fæddist 24. júlí 1887 á Hellum í Mýrdal og lést 16. júní 1948.
Faðir Jóns var Þórður bóndi á Hellum, f. 3. september 1848 í Skammadal í Mýrdal, d. 17. maí 1891 á Hellum, Jónsson bónda í Skammadal, f. 9. nóvember 1801 í Fjósum þar, d. 22. desember 1879 í Skammadal, Þórðarsonar bónda síðast í Skammadal, f. 1770, d. 22. júlí 1842 í Skammadal, Einarssonar, og konu Þórðar, Emerentíönu húsfreyju, f. 1769 á Kaldrananesi í Mýrdal, d. 27. apríl 1845 í Skammadal, Árnadóttur.
Móðir Þórðar á Hellum og kona Jóns í Skammadal var (23. júlí 1835) Guðrún húsfreyja, f. 18. janúar 1817 á Brekkum í Mýrdal, d. 29. júlí 1892 í Reynishólum þar, Jakobsdóttir bónda á Brekkum og Litlu-Hólum í Mýrdal, f. 1777, d. 2. febrúar 1851 í Fjósum þar, og konu Jakobs, Karítasar húsfreyju, f. 1788 á Vatnsskarðshólum í Mýrdal, d. 4. apríl 1844 í Fjósum, Þorsteinsdóttur.

Móðir Jóns í Hólum og kona Þórðar á Hellum var, (1878), Ragnhildur húsfreyja; var hjá Jóni Þórðarsyni syni sínum á Nýlendu í Eyjum 1910, f. 30. janúar 1854 á Núpi undir Eyjafjöllum, d. 4. desember 1938 í Eyjum, Jónsdóttir bónda á Núpi, f. 1829, Hannessonar bónda í Vallatúni undir Eyjafjöllum 1835, f. í september 1797 á Brekkum í Mýrdal, og konu Hannesar, Hildar húsfreyju, f. um 1793 að Steinum undir Eyjafjöllum, Eiríksdóttur.
Móðir Ragnhildar og barnsmóðir Jóns á Núpi var Sigríður, vinnukona, f. 1829 í Jórvík í Álftaveri, Gunnsteinsdóttir bónda lengst í Kerlingardal, f. 22. október 1800 í Hörgsdal á Síðu, d. 8. nóvember 1881 í Hvammi í Skaftártungu, Runólfssonar, og konu Gunnsteins, (11. september 1823), Ragnhildar húsfreyju, f. 24. október 1802 á Undirhrauni í Meðallandi, d. 2. júlí 1879 í Kerlingardal, Jónsdóttur.

Börn Þórðar og Ragnhildar á Nýlendu voru:
1. Sigríður Ragnhildur Þórðardóttir, f. 5. júlí 1879, d. 5. febrúar 1881.
2. Jónína Guðlaug Þórðardóttir, f. 29. júní 1880, d. 18. maí 1969, kona (skildu) Vilhjálms Brandssonar, f. 1878.
3. Sigríður Ragnhildur Þórðardóttir, f. 27. maí 1882, d. 22. júlí sama ár.
4. Sigurfinna Þórðardóttir húsfreyja í Gerði, f. 1883.
5. Jón Þórðarson, f. 2. júní 1886, d. 24. sama mánaðar.
6. Jón Þórðarson í Hólum, f. 24. júlí 1887, d. 16. júní 1948.
7. Guðrún Þórðardóttir, f. 2. desember 1888, húsfreyja á Ljótarstöðum í Skaftártungu og á Þykkvabæjarklaustri í Álftaveri.
8. Gunnsteinn Þórðarson landverkamaður, sjómaður, f. 11. desember 1889, drukknaði af vélbáti í Eyjum 24. mars 1908.
9. Þórður Benóní Þórðarson skipstjóri í Point Roberts í Washingtonríki í Bandaríkjunum, f. 28. janúar 1892.

Jón var með foreldrum sínum til 1894, hjá móður sinni og stjúpa á Haugnum í Mýrdal 1894-1901.
Hann var matvinningur á Borg í Eyjum 1901, sjómaður í Holti við giftingu 1910, en búandi á Nýlendu í lok ársins og 1911. Hann varð síðar útgerðarmaður.
Þau Guðbjörg Ágústa reistu Hóla við Hásteinsveg um 1911-1912, bjuggu þar 1912 og til æviloka.
Jón lést 1948 og Guðbjörg 1974.

Kona Jóns, (14. maí 1910), var Guðbjörg Ágústa Sigurðardóttir húsfreyja, f. 24. ágúst 1887, d. 21. apríl 1974.
Börn þeirra voru:
1. Sigurður Eyþór Jónsson, f. 22. júní 1914.
2. Óskar Jónsson sjómaður, f. 8. maí 1919, drukknaði 15. september 1940.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.