„Guðmundur Björnsson (Frydendal)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Guðmundur Björnsson''' vinnumaður í Frydendal fæddist 7. desember 1837 í Eystri-Garðsauka í Hvolhreppi og drukknaði 26. október 1871.<br> Foreldrar hans voru Björn H...) |
Ekkert breytingarágrip |
||
(1 millibreyting ekki sýnd frá sama notandanum) | |||
Lína 16: | Lína 16: | ||
*Prestþjónustubækur. | *Prestþjónustubækur. | ||
*Rangvellingabók. Valgeir Sigurðsson. Rangárvallahreppur, Hellu 1982.}} | *Rangvellingabók. Valgeir Sigurðsson. Rangárvallahreppur, Hellu 1982.}} | ||
{{Æviskrár Víglundar Þórs}} | |||
[[Flokkur: Vinnumenn]] | [[Flokkur: Vinnumenn]] | ||
[[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]] | [[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]] |
Núverandi breyting frá og með 14. ágúst 2015 kl. 19:51
Guðmundur Björnsson vinnumaður í Frydendal fæddist 7. desember 1837 í Eystri-Garðsauka í Hvolhreppi og drukknaði 26. október 1871.
Foreldrar hans voru Björn Höskuldsson bóndi víða á Rangárvöllum og i Hvolhreppi, f. í Gularáshjáleigu í A-Landeyjum, skírður 29. september 1799,
d. 18. júlí 1843 í Dagverðarnesi á Rangárvöllum, og kona hans Helga Guðmundsdóttir húsfreyja frá Ártúnum á Rangárvöllum, skírð 3. júní 1793, d. 1. nóvember 1885.
Föðursystur Guðmundar voru Guðrún Höskuldsdóttir húsfreyja á Kirkjubæ, kona Magnúsar Oddssonar skipstjóra og Guðríður Höskuldsdóttir húsfreyja á Kirkjubæ, kona Andrésar Sigurðssonar.
Guðmundur var með foreldrum sínum á Langekru á Rangárvöllum 1835, á Steinkrossi þar 1840, með móður sinni og Guðmundi Helgasyni stjúpföður sínum í Nikulásarhúsum í Fljótshlíð 1845.
Hann var vinnumaður á Hólmum í A-Landeyjum 1860.
Guðmundur fluttist frá Hólmum að Vilborgarstöðum 1861, var vinnumaður þar hjá Árna Einarssyni og Guðfinnu Austmann á því ári og -1863, hjá Margréti Jónsdóttur ekkju í Nýja-Kastala 1864-1868, hjá Margréti Magnúsdóttur ekkju á Kirkjubæ 1869, hjá Carl og madömu Roed í Frydendal 1870 og þar var hann vinnumaður 1871, er hann drukknaði við að sækja vatn undir Löngu.
Guðmundur var ókvæntur og barnlaus í Eyjum.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Rangvellingabók. Valgeir Sigurðsson. Rangárvallahreppur, Hellu 1982.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.