Þorvaldur Kristleifsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. júní 2024 kl. 11:10 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. júní 2024 kl. 11:10 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Þorvaldur Kristleifsson, sjómaður, öryggisvörður fæddist 18. febrúar 1951.
Foreldrar hans voru Kristleifur Magnússon netagerðarmaður, f. 23. júlí 1929 í Eyjum, d. 8. október 1965, og kona hans Jóna Guðlaug Óskarsdóttir húsfreyja, matráðskona, f. 16. febrúar 1930, d. 15. ágúst 2006.

Börn Jónu og Kristleifs:
1. Þuríður Kristín Kristleifsdóttir húsfreyja, f. 24. júlí 1949. Maður hennar Guðmundur Þorlákur Bjarni Ólafsson.
2. Þorvaldur Kristleifsson, f. 18. febrúar 1951. Kona hans Rakel Kristín Níelsdóttir.
3. Magnús Kristleifur Kristleifsson, f. 27. desember 1957. Kona hans Sigríður Petra Hansen.

Þorvaldur var með foreldrum sínum í æsku, við Hásteinsveg 42 og við Illugagötu 14.
Hann varð sjómaður í Sandgerði til fimmtugs, en öryggisvörður á Keflavíkurflugvelli síðustu 12 ár starfsferils síns.
Hann eignaðist barn með Rannveigu 1972.
Þau Rakel giftu sig 1988, eignuðust tvö börn. Þau búa í Sandgerði.

I. Barnsmóðir Þorvaldar er Rannveig Ása Reynisdóttir, f. 26. september 1951.
Barn þeirra:
1. Reynir Elís Þorvaldsson, f. 21. janúar 1972 í Rvk.

II. Kona Þorvaldar, (31. desember 1988), er Rakel Kristín Svanholt Níelsdóttir, húsfreyja, f. 26. nóvember 1947 á Selfossi. Foreldrar hennar Níels Pétur Bergþór Svanholt Björgvinsson, f. 10. ágúst 1926, d. 15. janúar 2015, og Ágústa Þórey Haraldsdóttir, f. 28. október 1929, d. 14. maí 2015.
Börn þeirra:
1. Jóna Guðlaug Þorvaldsdóttir, öryggisvörður, f. 12. júní 1984 í Keflavík. Maður hennar Símon Halldórsson.
2. Thelma Dögg Þorvaldsdóttir, uppeldisfræðingur, f. 12. desember 1985. Maður hennar Davíð Ingimarsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.