Guðrún Bjarnadóttir (Vilborgarstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. desember 2025 kl. 13:15 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. desember 2025 kl. 13:15 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Bjarnadóttir var fædd 22. febrúar 1869 í Dölum. Hún dvaldist á Vilborgarstöðum á heimili þeirra hjóna, Árna hreppstjóra og Guðfinnu konu hans. Móðir Guðrúnar hét Margrét Guðmundsdóttir og var vinnukona hjá hjónunum, þegar Guðrún gekk í barnaskólann.
Faðir Guðrúnar var Bjarni Bjarnason maður Margrétar, bóndi í Dölum og vinnumaður á Vilborgarstöðum. Hann fór að Hraunkróki í Hrunamannahreppi, - var þar 1880.
Guðrún fór til Danmerkur 1888 frá Vilborgarstöðum og var í Danmörku 1890, 1925 og 1940.


Heimildir

  • Heimaslóð.is.
  • Þorgils Jónasson sagnfræðingur.
  • Þorsteinn Víglundsson. Saga barnafræðslunnar í Vestmannaeyjum. Blik. 23. árg 1962.