Viktoría Gísladóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Viktoría Gísladóttir, húsfreyja, bókari í Kópavogi fæddist 5. maí 1965.
Foreldrar hennar Gísli Halldór Jónasson, skipstjóri, f. 13. september 1933, d. 30. júlí 2016, og kona hans Viktoría Karlsdóttir, húsfreyja, f. 6. nóvember 1939, d. 31. október 2020.

Börn Viktoríu og Gísla:
1. Jónas Ragnar Gíslason sölumaður í Mexíkó, f. 5. nóvember 1957. Kona hans Erika Ruiz.
2. Stella Gísladóttir, húsfreyja, bjó í Danmörku, nú í Eyjum, f. 23. október 1960. Fyrrum maður hennar Filip Heimburger.
3. Guðmundur Gíslason vélvirki, stöðvarstjóri í Eyjum, f. 15. febrúar 1963. Kona hans Guðný Jensdóttir.
4. Viktoría Gísladóttir húsfreyja í Kópavogi, f. 5. maí 1965. Fyrrum maður hennar Jens Jóhann Bogason.
5. Fanney Gísladóttir húsfreyja, snyrtifræðingur á Spáni, f. 8. nóvember 1966. Fyrrum maður hennar Guðni Ingvar Guðnason. Sambúðarmaður hennar Oddur Magnús Oddsson.
6. Bryndís Gísladóttir húsfreyja, verkstjóri í Eyjum, f. 16. febrúar 1973. Maður hennar Halldór Jón Sævarsson.

Þau Jens Jóhann giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau skildu.

I. Fyrrum maður Viktoríu er Jens Jóhann Bogason, f. 1. október 1965. Foreldrar hans Bogi Leifs Sigurðsson, frá Akranesi, f. 6. júlí 1927, d. 13. febrúar 2008, og Anna Friðbjörg Jensdóttir Joensen, f. 6. september 1940.
Börn þeirra:
1. Friðberg Leifs Jensson, f. 18. nóvember 1994.
2. Heiða Katrín Jensdóttir, f. 3. janúar 1996.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.