Unnur Garðarsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Unnur Garðarsdóttir húsfreyja á Akureyri fæddist 27. febrúar 1954 á Selfossi.
Foreldrar hennar voru Garðar Sveinsson frá Arnarstapa við Fjólugötu 2, f. 11. mars 1931 í Hafnarfirði, d. 8. janúar 2016, og kona hans Guðný Lára Ágústsdóttir frá Fáskrúðsfirði, húsfreyja, f. 20. nóvember 1931.

Börn Láru og Garðars:
1. Unnur Garðarsdóttir húsfreyja á Akureyri, f. 27. febrúar 1954 á Selfossi. Fyrrum maður hennar Egill Ómar Grettisson. Maður hennar Kristinn Vilhjálmur Daníelsson.
2. Gústav Garðarsson sölufulltrúi í Hafnarfirði, f. 4. apríl 1956 í Eyjum. Fyrrum kona hans Guðlaug Katrín Þórðardóttir. Kona hans Anna Kristín Jóhannesdóttir.
3. Sigurlaug Garðarsdóttir leiðbeinandi á leikskóla í Hafnarfirði, f. 3. maí 1962 í Eyjum. Maður hennar Bjarnfreður Ármannsson.
Kjörsonur þeirra, sonur Unnar dóttur þeirra:
4. Sveinn Garðar Garðarsson vélvirki í Hafnarfirði, f. 5. mars 1970 í Reykjvík. Sambúðarkona hans Þorgerður Guðrún Jónsdóttir.

Unnur var með foreldrum sínum í æsku.
Þau Egill giftu sig 1973, eignuðust tvö börn, en skildu.
Þau Kristinn Vilhjálmur giftu sig 1989, eignuðust eitt barn.

I. Maður Unnar, (8. desember 1973, skildu), er Egill Ómar Grettisson verkamaður, verkstjóri, f. 7. febrúar 1954 í Skarði í Djúpárhreppi, Rang. Foreldrar hans Grettir Jóhannesson frá Eyjum, bóndi, f. 11. febrúar 1927, d. 12. apríl 2002, og kona hans Málfríður Fanney Egilsdóttir frá Skarði, húsfreyja, starfsmaður afurðasölu, f. 7. apríl 1928.
Börn þeirra:
1. Málfríður Fanney Egilsdóttir, f. 20. janúar 1975 í Hafnarfirði. Sambúðarmaður hennar Ágúst Eiríksson.
2. Guðný Lára Egilsdóttir, f. 4. janúar 1978 í Keflavík. Sambúðarmaður hennar Víglundur Brynjar Bjarnason.

II. Maður Unnar, (2. september 1989), Kristinn Vilhjálmur Daníelsson tæknifræðingur, f. 16. september 1953. Foreldrar hans Daníel Guðmundur Einarsson tæknifræðingur, f. 9. júlí 1921 í Bolungarvík, d. 13. ágúst 2007, og kona hans Eva Þórsdóttir, húsfreyja, f. 10. júní 1923 á Bakka í Svarfaðardal, d. 28. nóvember 2011.
Barn þeirra:
3. Ásdís Kristinsdóttir, f. 23. ágúst 1990 í Keflavík.


Heimildir

  • Krossaætt. Björn Pétursson. Útgefandi Mál og mynd 1998.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.