Sveinn Valþór Sigþórsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sveinn Valþór Sigþórsson, húsasmíðameistari á Seltjarnarnesi fæddist 22. mars 1962.
Foreldrar hans Sigþór Sigurðsson, sjómaður , stýrimaður, skipstjóri, f. 8. nóvember 1924, d. 19. desember 2007, og kona hans Valgerður Kr. Kristjánsdóttir, húsfreyja, f. 9. júní 1930.

Börn Valgerðar og Sigþórs:
1. Erla Fanný Sigþórsdóttir húsfreyja, verkakona, starfsmaður Pósts & síma, f. 13. júní 1949 í Reykjavík. Maður hennar Yngvi Geir Skarphéðinsson.
2. Anna Kristín Sigþórsdóttir stúdent, húsfreyja í Garðabæ, bókhaldari, f. 30. maí 1950 á Reynifelli. Maður hennar Einar Sigfússon.
3. Sigurbjörg Sigþórsdóttir húsfreyja, móttökuritari á Borgarspítalanum, f. 6. janúar 1953 á Reynifelli. Fyrrum maður hennar Guðjón Örn Vopnfjörð Aðalsteinsson.
4. Sveinn Valþór Sigþórsson húsamiður í Hafnarfirði, f. 3. mars 1956. Kona hans Baldvina Sverrisdóttir.
5. Einar Sigþórsson sjómaður, stýrimaður í Eyjum, f. 22. mars 1962. Fyrrum kona hans Lóa Ósk Sigurðardóttir.
6. Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir húsfreyja, viðskiptafræðingur í Reykjavík, f. 26. október 1966. Maður hennar Tryggvi Ársælsson.

Þau Baldvina giftu sig, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu á Laugalandi við Vestmannabraut 53b 1980-1984.

I. Kona Sveins Valþórs er Baldvina Sigrún Sverrisdóttir, húsfreyja, listfræðingur, bankastarfsmaður, sjúkranuddari, f. 13. febrúar 1957. Foreldrar hennar Sverrir Ósmann Sigurðsson, múrari, bústjóri, bóndi, f. 21. janúar 1928, d. 26. janúar 2004, og Erna Hallgrímsdóttir, húsfreyja, f. 30. október 1933, d. 29. október 2023.
Börn þeirra:
1. Héðinn Valþórsson, f. 2. apríl 1975 á Akureyri.
2. Þórkatla Kristín Valþórsdóttir, f. 16. janúar 1983 í Eyjum.
3. Vala Sigrún Valþórsdóttir, f. 13. september 1986 í Keflavík.
4. Kristrún Helga Valþórsdóttir, f. 29. febrúar 1996 á Lsp.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.