Sigurbjörg Sigþórsdóttir
Sigurbjörg Sigþórsdóttir, húsfreyja, móttökuritari á Borgarspítalanum fæddist 6. janúar 1953.
Foreldrar hennar Sigþór Sigurðsson, sjómaður , stýrimaður, skipstjóri, f. 8. nóvember 1924, d. 19. desember 2007, og kona hans Valgerður Kr. Kristjánsdóttir, húsfreyja, f. 9. júní 1930.
Börn Valgerðar og Sigþórs:
1. Erla Fanný Sigþórsdóttir húsfreyja, verkakona, starfsmaður Pósts & síma, f. 13. júní 1949 í Reykjavík. Maður hennar Yngvi Geir Skarphéðinsson.
2. Anna Kristín Sigþórsdóttir stúdent, húsfreyja í Garðabæ, bókhaldari, f. 30. maí 1950 á Reynifelli. Maður hennar Einar Sigfússon.
3. Sigurbjörg Sigþórsdóttir húsfreyja, móttökuritari á Borgarspítalanum, f. 6. janúar 1953 á Reynifelli. Fyrrum maður hennar Guðjón Örn Vopnfjörð Aðalsteinsson.
4. Sveinn Valþór Sigþórsson húsamiður í Hafnarfirði, f. 3. mars 1956. Kona hans Baldvina Sverrisdóttir.
5. Einar Sigþórsson sjómaður, stýrimaður í Eyjum, f. 22. mars 1962. Fyrrum kona hans Lóa Ósk Sigurðardóttir.
6. Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir húsfreyja, viðskiptafræðingur í Reykjavík, f. 26. október 1966. Maður hennar Tryggvi Ársælsson.
Þau Guðjón Örn giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau skildu. Sigurbjörg býr við Áshamar 63.
I. Fyrrum maður Sigurbjargar er Guðjón Örn Vopnfjörð Aðalsteinsson, sjómaður, f. 10. nóvember 1950. Foreldrar hans Aðalsteinn Hólm Þorsteinsson, f. 22. ágúst 1914, d. 4. maí 1961, og Helga Óladóttir, f. 26. júní 1924, d. 12. nóvember 1999.
Börn þeirra:
1. Anna Lára Guðjónsdóttir, f. 6. maí 1973.
2. Gunnar Þór Guðjónsson, f. 22. desember 1977.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Sigurbjörg.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.