Sveinbjörn Jónsson (Víðidal)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sveinbjörn Anton Jónsson bifreiðastjóri, framkvæmdastjóri fæddist 26. júní 1926 í Hlíðarhaga í Eyjafjarðarsveit ogt lést 29. júní 1999 á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri.
Foreldrar hans voru Jón Bjarnason, f. 11. nóvember 1899, d. 21. apríl 1942, og Sveinsína Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir, f. 21. mars 1892, d. 2. desember 1978.

Sveinbjörn var leigubifreiðastjóri á Akureyri og síðar framkvæmdastjóri Bifreiðastöðvar Oddeyrar á Akureyri frá 1978.
Hann fór til Eyja 1948 í atvinnuleit og vann í Hraðfrystistöðinni. Þau Erla giftu sig 1948, eignuðust sex börn. Þau fluttu til Akureyrar, sumarið 1948, bjuggu þar til 1969, fluttu þá til Eyja, bjuggu í Víðidal, fluttu til Reykjavíkur í Gosinu 1973, aftur til Eyja, en til Akureyrar 1978.
Sveinbjörn lést 1999.
Eftir lát Sveinbjörns flutti Erla til Reykjavíkur.
Hún lést 2015.

I. Kona Sveinbjörns, (17. desember 1948), var Erla Einarsdóttir frá Viðey, húsfreyja, verkakona, f. 17. desember 1927, d. 19. apríl 2015.
Börn þeirra:
1. Jón Sveinbjörnsson, f. 27. febrúar 1949. Kona hans Heiða Grétarsdóttir.
2. Einar Sveinbjörnsson, f. 10. maí 1950. Kona hans Þórey Sveinsdóttir.
3. Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir, f. 4. júní 1951. Maður hennar Sverrir Sveinsson.
4. Sveinbjörn Sveinbjörnsson, f. 8. desember 1953. Barnsmóðir hans Regína Helgadóttir.
5. Elsa Birna Sveinbjörnsdótttir, f. 3. júlí 1955. Fyrrum maður hennar Sigurður Guðmundsson. Unnusti hennar Guðmundur Halldórsson.
6. Bjarni Sveinbjörnsson, f. 18. febrúar 1963. Kona hans Halla Kristjana Halldórsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.