Sveinbjörn Helgi Blöndal

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Sveinbjörn Helgi Blöndal.

Sveinbjörn Helgi Blöndal smiður, málari, listmálari fæddist 11. október 1932 á Akureyri og lést 7. apríl 2010.
Foreldrar hans voru Magnús Blöndal Björnsson framkvæmdastjóri á Siglufirði, f. 6. nóvember 1897, d. 19. ágúst 1945, og kona hans Elsa María Schiöth húsfreyja, f. 23. desember 1906, d. 14. júlí 1966.

Þau Birna giftu sig, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu fyrstu tvö ár sín í Eyjum, fluttu til Skagastrandar 1955, en fluttu til Hafnarfjarðar 2001.

I. Kona Sveinbjarnar Helga var Ingibjörg Birna Jónsdóttir frá Sandi, húsfreyja, f. 6. ágúst 1932, d. 26. október 2018.
Börn þeirra:
1. Elsa Lára Blöndal sjúkraliði, f. 24. september 1955, óg.
2. Magnús Bjarni Blöndal tamningamaður, f. 12. janúar 1959, d. 7. september 2001. Sambúðarkona Solveig Eiríksdóttir.
3. Kristján Jón Blöndal húsasmiður, f. 6. október 1963, ókv.
4. Númi Orri Blöndal húsasmíðameistari, f. 4. júlí 1966. Fyrrum kona Hrefna Snorradóttir. Kona Arnbjörg Högnadóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.