Steinunn Hödd Harðardóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Steinunn Hödd Harðardóttir þjóðgarðsvörður í syðri hluta Vatnajökulsþjóðgarðs, fæddist 28. janúar 1986.
Foreldrar hennar Hörður Guðjónsson sjómaður, rekur ferðaþjónustu, f. 16. janúar 1955, og kona hans Sólveig Þóra Arnfinnsdóttir húsfreyja, f. 7. maí 1959.

Þau Finnur Smári giftu sig, hafa eignast tvö börn. Þau búa á Höfn í Hornafirði.

I. Maður Steinunnar Haddar er Finnur Smári Torfason frá Höfn, rafmagns- og tölvuverkfræðingur, f. 30. október 1986. Foreldrar hans Torfi Þór Friðfinnsson, f. 3. mars 1955, og Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir, f. 19. nóvember 1953.
Börn þeirra:
1. Hörður Þór Finnsson, f. 23. júlí 2011.
2. Ída Lúcia Finnsdóttir, f. 8. febrúar 2016.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.