Steingrímur Benediktsson (skólastjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Steingrímur Benediktsson.

Steingrímur Benediktsson frá Sauðárkróki, kennari, skólastjóri, sáttanefndarmaður fæddist 20. maí 1901 og lést 23. nóvember 1971.
Foreldrar hans voru Benedikt Jóhannsson verslunarmaður, f. 10. júní 1871, d. 29. apríl 1940, og kona hans Björg Helgadóttir húsfreyja, f. 14. maí 1875, d. 26. maí 1929.

Steingrímur gekk í Unglingaskóla Sauðákróks, varð búfræðingur á Hólum 1922, lauk kennaraprófi 1934. Hann átti námsdvöl í Noregi (kristinfræðikennsla og kristilegt æskulýðsstarf) janúar til júní 1953.
Steingrímur og Hallfríður fluttu til Eyja 1929.
Hann var verkstjóri, kenndi í Barnaskólanum í Eyjum frá 1934 til 1961, var skólastjóri þar 1961-1966.
Steingrímur var formaður K.F.U.M. í Eyjum, í stjórn kirkjukórsins, sóknarnefndarmaður, framfærslunefndarmaður og sáttanefndarmaður. Hann var kirkjuþingmaður Suðvesturlands 1958, í stjórn Neytendafélags Vestmannaeyja, formaður Kaupfélags Vestmannaeyja.
Hann skrifaði greinar í blöð um uppeldis- og kristindómsmál, einkum í Bjarma. Hann hélt erindi í útvarpi um kristindómsfræðslu, og grein í Menntamálum 1949. Hann þýddi Samræður um trúmál, fjölritað 1959. Rit (vb): Biblíusögur fyrir barnaskóla (með Þórði Kristjánssyni) 1963.
Þau Hallfríður Ingibjörg giftu sig 1925, eignuðust sjö börn, en misstu eitt þeirra á öðru ári þess. Þau bjuggu í Heiðarbýli við Brekastíg 6 1930, byggðu húsið Ljósheima við Hvítingaveg 6 og bjuggu þar.
Hallfríður lést 1967, og Steingrímur 1971.

I. Kona Steingríms, (20. maí 1925 í Svarfaðardal), var Hallfríður Ingibjörg Kristjánsdóttir frá Ytri-Másstöðum í Svarfaðardal, húsfreyja, f. 14. desember 1899, d. 24. mars 1967.
Börn þeirra:
1. Benedikt Kristján Steingrímsson skrifstofumaður í Reykjavík, f. 14. júlí 1926, d. 1. júlí 1995.
2. Björg Steingrímsdóttir, f. 14. mars 1928, d. 25. maí 1929.
3. Páll Steingrímsson kennari, kvikmyndagerðarmaður, myndlistarmaður, f. 25. júlí 1930, d. 11. nóvember 2016.
4. Jón Helgi Steingrímsson tónlistarmaður, f. 25. janúar 1932, d. 31. janúar 1951.
5. Gísli Steingrímsson málarameistari, f. 5. ágúst 1934, d. 3. janúar 2023.
6. Svavar Steingrímsson pípulagningamaður, f. 24. maí 1936.
7. Bragi Steingrímsson plötusmiður, f. 1. janúar 1944.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Kennaratal á Íslandi. Ólafur Þ. Kristjánsson og fleiri. Prentsmiðjan Oddi 1958-1988.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.