Soffía Einarsdóttir (Staðarfelli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Sæmundur og Soffía Sigríður.

Soffía Sigríður Einarsdóttir húsfreyja í Götuhúsum á Stokkseyri fæddist 24. júní 1848 í Bollagörðum á Seltjarnarnesi og lést 4. apríl 1937 á Selfossi.
Foreldrar hennar voru Einar Hjörtsson vinnumaður, síðar bóndi og sjómaður í Bollagörðum, ættfaðir Bollagarðaættar, f. 6. nóvember 1818, d. 2. október 1900, og Sigríður Jónsdóttir vinnukona, f. 18. ágúst 1819, d. 8. desember 1850,

Soffía Sigríður var með föður sínum og konu hans í Bollagörðum 1850 og enn 1870.
Hún eignaðist barn með Leó 1869.
Þau Sæmundur giftu sig 1874, voru gift vinnufólk í Auðsholtshjáleigu í Ölfusi 1880 með barnið Sigríði, húsfólk og bændur á Miðhúsum í Flóa 1890 með börnunum Steindóri og Einari, en Sigríður var tökubarn á bænum Selfossi hjá Sesselju Hannesdóttur afasystur sinni og síðar húsfreyja þar.
Þau Soffía byggðu Götuhús á Stokkseyri 1897 og bjuggu þar.
Þau fluttust að Staðarfelli 1912, bjuggu á Rafnseyri 1913 og 1914, voru í Jóhannshúsi við Vesturveg 1915 og 1916, á Staðarfelli 1917 og 1918.
Sæmundur lést 1919 og Soffía 1937.

I. Barnsfaðir Soffíu var Leó Halldórson frá Tittlingsstöðum í Víðidal, sjómaður og vinnumaður í Bollagörðum, f. 25. júní 1842, drukknaði 26. október 1868 suður í Leiru, Gull. Foreldrar hans voru Halldór Þorláksson bóndi í Saltvík á Kjalarnesi f. 16. janúar 1811, d. 11. janúar 1875 og kona hans Sigríður Sigurðardóttir frá Lækjarmóti í Víðidal, húsfreyja, f. 30. janúar 1819, d. eftir 1880.
Barn þeirra:
1. Anna Leópoldína Leósdóttir, síðar bústýra í Lambhúskoti u. Eyjafjöllum, f. 13. janúar 1869, d. 25. mars 1943. Barnsfaðir hennar var Guðjón Jónsson vinnumaður, síðar bóndi í Þverdal í Saurbæ í Dal.

II. Maður Soffíu Sigríðar, (16. október 1874), var Sæmundur Steindórsson steinsmiður f. 22. október 1847 í Stóru-Sandvík í Flóa, d. 2. febrúar 1919 í Eyjum.

Börn þeirra:
2. Sigríður Sæmundsdóttir húsfreyja á Selfossi, f. 10. júlí 1878 í Mýrarhúsum á Seltjarnarnesi, d. 15. maí 1965 á Selfossi. Maður hennar var Símon Jónsson bóndi, trésmiður, f. 7. maí 1864, d. 24. september 1937.
3. Steindór Sæmundsson bifreiðastjóri, f. 26. janúar 1881 í Auðsholtshjáleigu í Ölfusi, d. 9. ágúst 1948.
4. Einar Sæmundsson byggingameistari, f. 9. desember 1884 í Kálfhaga í Stokkseyrarhreppi, d. 14. desember 1974.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Bollagarðaætt á Seltjarnarnesi. Niðjatal Einars Hjörtssonar útvegsbónda í Bollagörðum og konu hans Önnu Jónsdóttur og barnsmóður hans Sigríðar Jónsdóttur. Gylfi Ásmundsson tók saman. Þjóðsaga. Reykjavík 1990.
  • Bólstaðir og búendur í Stokkseyrarhreppi. Guðni Jónsson. Stokkseyringafélagið í Reykjavík 1952.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Múraratal og steinsmiða. 2. útgáfa, aukin. Þorsteinn Jónsson, Brynjólfur Ámundason. Þjóðsaga 1993.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.