Snæbjörn Sigurbjörnsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Snæbjörn Sigurbjörnsson verkamaður fæddist 2. apríl 1947 í Kamp Knox í Reykjavík og lést 27. mars 2000.
Foreldrar hans voru Sigurbjörn Árnason frá Stóra-Hvammi sjómaður, verkamaður, bifreiðastjóri, f. 6. mars 1920, d. 31. desember 1998,. og kona hans Ester S. Snæbjörnsdóttur frá Reykjavík, húsfreyja, f. 7. september 1923, d. 31. júlí 2016.

Börn Esterar og Sigurbjörns:
1. Snæbjörn Sigurbjörnsson verkamaður, f. 2. apríl 1947 í Kamp Knox í Reykjavík, d. 27. mars 2000, ókvæntur.
2. Hafþór Sigurbjörnsson skipstjóri, verslunarmaður, innkaupastjóri, f. 31. júlí 1949 í Nýjahúsi við Heimagötu 3B. Hann býr í Svíþjóð. Kona hans Erla Björg Magnúsdóttir.
3. Sigurður Rósant Sigurbjörnsson kennari, f. 21. júní 1950 á Brekastíg 31. Barnsmóðir hans Guðríður Guðmundsdóttir. Fyrri kona hans var Guðbjörg Óskarsdóttir, látin. Síðari kona hans Hafdís Hrönn Ingimundardóttir.
4. Sigmar Ágúst Sigurbjörnsson sjúklingur, f. 12. sept. 1951 í Eyjum, d. 24. mars 1972, ókvæntur .
5. Ingibjörg Elín Sigurbjörnsdóttir húsfreyja, verslunarmaður, f. 11. sept. 1952 í Eyjum. Maður hennar Sigurður Eyþórsson.
6. Árni Sigurbjörnsson verkamaður, f. 22. nóv. 1953 í Eyjum, d. 10. mars 1983. Barnsmæður hans Anna Bjarndís Gísladóttir og Soffía Ragnarsdóttir.
7. Páll Ingimundur Blöndal Sigurbjörnsson tölvunarfræðingur, f. 15. apríl 1955. Kona Elfa Dís Austmann Jóhannsdóttir.
8. Aðalheiður Sigurbjörnsdóttir húsfreyja, f. 2. júní 1956. Barnsfaðir hennar Helgi Valur Helgason.
9. Finnbogi Sigurbjörnsson verkamaður, f. 22. sept. 1957, d. 27. okt. 2001.
10. Sigurbjörn Blöndal Sigurbjörnsson, f. 3. nóv. 1958. Barnsmóðir hans Lilja Sigurðardóttir. Barnsmóðir hans Hafdís Erla Baldvinsdóttir.
Barn Sigurbjörns og Maríu Björgvinsdóttur:
11. Kristín Birna Sigurbjörnsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 15. september 1944.
Barn Sigurbjörns og Erlu Kristjánsdóttur:
12. Svanur Sigurbjörnsson læknir, f. 13. febrúar 1965 í Reykjavík. Fyrrum sambýliskona hans Hanna Þórunn Skúladóttir. Fyrrum eiginkona hans Sólveig Halldórsdóttir.

Snæbjörn var með foreldrum sínum, en þau skildu, er hann var 12 ára.
Hann var með þeim í Kamp Knox í Reykjavík, fluttist með þeim til Eyja 1949, bjó með þeim í Nýjahúsi við Heimagötu 3B, á Brekastíg 31, í Hraundal og á Hólagötu 31. Hann fluttist með þeim í Hafnarfjörð 1954, á Álftanes 1955 og bjó með þeim í Ægiskampi 1956-1957, þá í Gnoðarvogi og þar bjó Snæbjörn síðar með móður sinni og systkinum eftir skilnað foreldra sinna.
Hann var ókvæntur og lést 2000.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Hvammsætt. Handrit. Svanur Sigurbjörnsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Ættingjar.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.