Snæbjörn Guðni Valtýsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Snæbjörn Guðni Valtýsson, tölvunarfræðingur fæddist 31. ágúst 1958.
Foreldrar hans voru Valtýr Snæbjörnsson vélstjóri, húsasmíðameistari, verktaki, byggingafulltrúi, f. 24. apríl 1923, d. 10. febrúar 1998, og kona hans Erla Jóhanna Elísabet Gísladóttir frá Sólbakka við Hásteinsveg 3, húsfreyja, f. 26. október 1927, d. 7. júní 2005.

Börn Erlu og Valtýs:
1. Gísli Valtýsson húsasmiður, prentari, f. 27. febrúar 1946 í Hergilsey. Kona hans er Hanna Þórðardóttir.
2. Friðbjörn Ólafur Valtýsson húsasmiður, f. 20. febrúar 1950 í Hergilsey. Kona hans er Magnea Traustadóttir.
3. Valtýr Þór Valtýsson húsasmiður, verslunarstjóri, kaupmaður, f. 25. maí 1955 í Hergilsey, d. 1. desember 2002. Kona hans er Ingunn Lísa Jóhannesdóttir.
4. Snæbjörn Guðni Valtýsson tölvunarfræðingur, f. 31. ágúst 1958. Kona hans er Valgerður Björg Ólafsdóttir.
5. Kolbrún Eva Valtýsdóttir húsfreyja, f. 23. maí 1960 í Hergilsey. Maður hennar er Birgir Þór Sverrisson.

Snæbjörn var lengi kerfisfræðingur hjá Origo.
Þau Valgerður giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í Eyjum 1988-1996, í Danmörku 1996-1999, í Eyjum 1999-2005, við Áshamar 61, búa við Steinás í Reykjanesbæ frá 2005.

I. Kona Snæbjörns er Valgerður Björg Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur, ljósmóðir, f. 28. febrúar 1956.
Börn þeirra:
1. Þorgerður Anja Snæbjörnsdóttir, f. 27. nóvember 1992 í Rvk.
2. Ragnheiður Alma Snæbjörnsdóttir, f. 5. desember 1994 í Rvk.
Barn Valgerðar og fósturbarn Snæbjörns:
3. Jörundur Ármann Ásgrímsson, f. 26. ágúst 1979, d. 7. október 2023.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.