Sigurbjörg Hjálmarsdóttir (ritari)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Sigurbjörg Hjálmarsdóttir.

Sigurbjörg Hjálmarsdóttir húsfreyja, talsímakona, ritari fæddist 2. apríl 1923 á Vegamótum og lést 1. maí 2010 á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi.
Foreldrar hennar voru Hjálmar Eiríksson frá Vegamótum, skrifstofumaður, verslunarstjóri, f. 25. janúar 1900, d. 18. ágúst 1940, og kona hans Jóna Kristinsdóttir frá Steinakoti á Árskógsströnd í Eyjafirðir, ljósmóðir, f. 21. desember 1895, d. 27. október 1975.

Börn Jónu og Hjálmars:
1. Sigurbjörg deildarritari, f. 2. apríl 1923 á Vegamótum, d. 1. maí 2010, gift Viggó Einarssyni flugvirkja.
2. Eiríkur skrifstofumaður, f. 4. júlí 1924 á Stað, d. 5. september 1971, kvæntur Hlíf Erlendsdóttur frá Keflavík, látin.
3. Helga Ágústa aðalgjaldkeri á skrifstofu Ríkisspítalanna, f. 2. júlí 1927 á Heiðarbýli við Brekastíg 6, d. 7. júlí 2004, gift Árna Friðjónssyni skrifstofumanni.
4. Anna skrifstofumaður í Hafnarfirði, f. 16. desember 1929 á Kalmanstjörn við Vestmannabraut 3, gift Kristleifi Einarssyni eftirlitsmanni hjá Íslenzka Álfélaginu í Straumsvík.
5. Ása gjaldkeri hjá Áfengis- og tóbaksverzlun Ríkisins, f. 4. maí 1931 á Kalmanstjörn, d. 1. mars 2011, gift Hauki Ingimarssyni bifreiðasmið.
6. Fríða Kristbjörg læknaritari á Landspítalanum, f. 4. febrúar 1935 á Faxastíg2, d. 23. september 2021, gift (skildu) Birgi Matthíasi Indriðasyni matsveini í Reykjavík.

Sigurbjörg var með foreldrum sínum, en faðir hennar lést, er hún var 17 ára.
Hún varð gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum 1940, stundaði nám í húsmæðraskóla í Svíþjóð 1946-1947.
Sigurbjörg flutti til Reykjavíkur 1948, var um skeið talsímakona, síðan ritari á sængurkvennagangi Landspítalans í 30 ár.
Þau Viggó giftu sig 1950, eignuðust 4 börn. Þau bjuggu lengst við Hvassaleiti 14, en í síðan í Gullsmári 8.
Viggó lést 2005 og Sigurbjörg 2010.

I. Maður Sigurbjargar, (7. október 1950), var Viggó Einarsson flugvirki, f. 21. október 1928 í Reykjavík, d. 8. desember 2005. Foreldrar hans voru Einar Bjarnason, f. 4. apríl 1907 á Þingeyri, d. 3. nóvember 1990, og Magnea Sigurðardóttir, f. 11. júní 1905 á Hjalteyri, d. 25. mars 1989.
Börn þeirra:
1. Hjálmar Viggósson, f. 8. desember 1950. Kona hans Ragnheiður Hermannsdóttir.
2. Magnea Viggósdóttir, f. 9. febrúar 1952. Maður hennar Kenneth Morgan.
3. Erna Margrét Viggósdóttir, f. 27. september 1967. Maður hennar Kristján Þ. Guðmundsson.
4. Helen Viggósdóttir, f. 19. ágúst 1963. Maður hennar Þórarinn Þórarinsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.