Sigurður Grétar Bogason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Sigurður Grétar Bogason.

Sigurður Grétar Bogason matvælaverkfræðingur fæddist 11. maí 1953.
Foreldrar hans Bogi Sigurðsson frá Stakkagerði, verksmiðjustjóri, f. 9. febrúar 1932, d. 19. janúar 2023, og kona hans Fjóla Jensdóttir frá Einidrangi við Brekastíg 29, húsfreyja, f. 15. apríl 1932, d. 31. mars 1986.

Börn Fjólu og Boga:
1. Sigurður Grétar Bogason, f. 11. maí 1953. Kona hans Halldóra Birna Eggertsdóttir Ólafssonar.
2. Jens Ólafur Bogason, f. 18. september 1955. Kona hans Reidun Irene Bolstad.
3. Valur Bogason, f. 8. október 1965. Kona hans Þórdís Jóelsdóttir þórs Andersen.
4. Bryndís Bogadóttir, f. 15. júní 1967. Maður hennar Pétur Andersen.

Sigurður Grétar varð stúdent í MR 1973, lauk B.S.-prófi í matvælafræði í HÍ 1980, lauk doktorsprófi í matvælafræði í Oregon State University í Bandaríkjunum 1984.
Hann var forstöðumaður þróunardeildar SÍF 1984-1990, framkvæmdastjóri Lifrarsamlags Vestmannaeyja 1990-1991, forstöðumaður þróunarmála hjá SH 1991-1993, forstjóri Fishcor/Seaflower Whitefish Corp. Ltd. í Namibíu 1993-1995. (Þannig 1996).
Þau Halldóra Birna giftu sig 1973, eignuðust þrjú börn.

I. Kona Sigurðar Grétar, (3. júní 1973), er Halldóra Birna Eggertsdóttir kennari, f. 13. mars 1953.
Börn þeirra:
1. Sigrún Edda Sigurðardóttir, f. 27. júní 1972 í Eyjum.
2. Bogi Fjalar Sigurðsson, f. 9. júlí 1978 í Eyjum.
3. Hildigunnur Sigurðardóttir, f. 24. janúar 1986 í Rvk.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Prestþjónustubækur.
  • Verkfræðingatal. Ritstjóri: Þorsteinn Jónsson. Þjóðsaga ehf. 1996.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.