Bryndís Bogadóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Bryndís Bogadóttir, kennari fæddist 15. júní 1967 í Eyjum.
Foreldrar hennar Bogi Sigurðsson frá Stakkagerði, verksmiðjustjóri, f. 9. febrúar 1932, d. 19. janúar 2023, og kona hans Fjóla Jensdóttir frá Einidrangi við Brekastíg 29, húsfreyja, f. 15. apríl 1932, d. 31. mars 1986.

Börn Fjólu og Boga:
1. Sigurður Grétar Bogason, f. 11. maí 1953. Kona hans Halldóra Birna Eggertsdóttir Ólafssonar.
2. Jens Ólafur Bogason, f. 18. september 1955. Barnsmóðir hans Rannveig Jónsdótir. Kona hans Reidun Irene Bolstad.
3. Valur Bogason, f. 8. október 1965. Kona hans Þórdís Jóelsdóttir þórs Andersen.
4. Bryndís Bogadóttir, f. 15. júní 1967. Maður hennar Pétur Andersen.

Bryndís varð kennari.
Þau Pétur giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau búa við Illugagötu.

I. Maður Bryndísar er Pétur Andersen, f. 1. desember 1972.
Börn þeirra:
1. Willum Pétur Andersen, f. 6. ágúst 2000.
2. Fjóla Kristný Andersen, f. 8. desember 2002.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Heimaslóð.
  • Íslendingabók.
  • Prestþjónustubækur.
  • Valdaætt. Niðjatal Valda Ketilssonar bónda á Sauðhúsvöllum undir Eyjafjöllum og k.h. Katrínar Þórðardóttur. Magnea Árnadóttir. Handrit 1992.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.