Sigríður Böðvarsdóttir (Búastöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigríður Böðvarsdóttir húsfreyja á Búastöðum fæddist í ágúst 1767 og lést 9. desember 1844.
Foreldrar hennar voru sr. Böðvar Högnason prestur í Holtaþingum, sat í Marteinstungu og Guttormshaga, f. 31. október 1727, d. 10. janúar 1779, og kona hans Gyðríður Þorvaldsdóttir frá Múla í Álftafirði, S-Múl., húsfreyja, f. 6. september 1731, d. 17. maí 1809.

Þau Högni giftu sig 1793, eignuðust sex börn. Þau voru bændur á Árgilsstöðum í Hvolhreppi, Rang. 1793, á Búastöðum í Eyjum 1808-1817, á Hrepphólum í Árn. 1817-1837.
Högni lést 1837 og Sigríður 1844.

I. Maður Sigríðar, (29. september 1793), var Högni Stefánsson prestur, f. 8. maí 1771, d. 24. september 1837. Foreldrar hans voru sr. Stefán Högnason á Breiðabólstað í Fljótshlíð, síðar á Árgilsstöðum í Hvolhreppi, Sigurðssonar; Stefán, f. 15. maí 1724, d. 27. nóvember 1801 og kona hans Guðrún yngri Halldórsdóttir húsfreyja, Einarssonar prests á Stað í Steingrímsfirði, Strand.; hún d. 16. júní 1801.
Börn þeirra voru:
1. Sr. Böðvar Högnason aðstoðarprestur á Hallormsstað, f. 24. júlí 1794, d. 15. apríl 1835 úr holdsveiki, ókv. og barnlaus.
2. Þórunn Högnadóttir húsfreyja í Móakoti á Vatnsleysuströnd, f. 1795, kona Guðmundar Guðmundssonar.
3. Stefán Högnason, f. 1799, d. úr holdsveiki 29. júní 1836, ókv. og barnlaus.
4. Hólmfríður Högnadóttir, f. 1801, d. 1845, óg. og barnlaus.
5. Sr. Jón Högnason prestur á Hrepphólum, f. 23. mars 1807, d. 23. júní 1879, kvæntur Kristínu Jónsdóttur húsfreyju frá Reykjadal.
6. Guðrún Högnadótttir húsfreyja að Laugum í Hrunamannahreppi, f. 16. ágúst 1808 á Árgilsstöðum í Hvolhreppi, d. 10. júní 1879. Hún var síðari kona Snorra Sveinbjörnssonar bónda á Laugum. Sambúðarmaður hennar Matthías Eyjólfsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.