Hólmfríður Högnadóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Hólmfríður Högnadóttir frá Búastöðum fæddist 3. september 1801 á Árgilsstöðum í Hvolhreppi, Rang. og lést 8. júní 1845 á Hrepphólum í Hrunamannahreppi, Árn.
Foreldrar hennar voru sr. Högni Stefánsson prestur í Eyjum, síðar á Hrepphólum. f. 8. maí 1771, d. 24. september 1837, og kona hans Sigríður Böðvarsdóttir húsfreyja, f. í ágúst 1767, d. 9. desember 1844.

Börn Sigríðar og Högna;
1. Sr. Böðvar Högnason aðstoðarprestur á Hallormsstað, f. 24. júlí 1794, d. 15. apríl 1835 úr holdsveiki, ókv. og barnlaus.
2. Þórunn Högnadóttir húsfreyja í Móakoti á Vatnsleysuströnd, f. 1795, kona Guðmundar Guðmundssonar.
3. Stefán Högnason, f. 1799, d. úr holdsveiki 29. júní 1836, ókv. og barnlaus.
4. Hólmfríður Högnadóttir, f. 1801, d. 8. júní 1845, óg. og barnlaus.
5. Sr. Jón Högnason prestur á Hrepphólum, f. 23. mars 1807, d. 23. júní 1879, kvæntur Kristínu Jónsdóttur húsfreyju frá Reykjadal.
6. Guðrún Högnadótttir húsfreyja að Laugum í Hrunamannahreppi, f. 16. ágúst 1808 á Árgilsstöðum í Hvolhreppi, d. 10. júní 1879. Hún var síðari kona Snorra Sveinbjörnssonar bónda á Laugum. Sambúðarmaður hennar Matthías Eyjólfsson.

Hólmfríður var með foreldrum sínum, á Árgilsstöðum í Hvolhreppi, á Búastöðum í Eyjum og á Hrepphólum í Hrunamannahreppi, Árn. síðar hjá sr. Jóni bróður sínum þar með Sigríði móður sinni.
Hún lést 1845. ógift og barnlaus.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.