Sögufélag Vestmannaeyja

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Stjórn sögufélagsins árið 1990

Sögufélag Vestmannaeyja var stofnað 1. maí 1980. Markmið félagsins er að efla sögurannsóknir í Vestmannaeyjum, styðja söfnun og varðveislu sögulegra heimilda og útgáfustarfsemi.

Í fyrstu stjórn félagsins voru Helgi Bernódusson formaður, Ragnar Óskarsson varaformaður, Hermann Einarsson ritari, Ágúst Karlsson gjaldkeri, Haraldur Guðnason og Ingólfur Guðjónsson meðstjórnendur.

Haraldur Guðnason var ráðinn ritstjóri ársrits sem skyldi birta greinar um byggðasögu Vestmannaeyja, alþýðlegan fróðleik, myndir, kveðskap og fleira.

Á stofnfundi félagsins var Þorsteinn Þ. Víglundsson kjörinn heiðursfélagi Sögufélags Vestmannaeyja í virðingar- og þakkarskyni fyrir framlag sitt til byggðasögu Vestmannaeyja.

Á 10 ára afmæli félagsins var boðað til fundar þar sem saga félagsins var rakin auk þess sem farið var yfir útgáfusögu og söfnun sögulegra minja. Þá voru í stjórn félagsins Hermann Einarsson formaður, Sigmundur Andrésson varaformaður, Áki Heinz Haraldsson gjaldkeri, Haraldur Guðnason og Hlöðver Johnsen meðstjórnendur.

Sögufélag Vestmannaeyja hefur látið að sér kveða frá stofnun og stutt að varðveislu sögulegra heimilda á ýmsan hátt. Árið 2014 stóð það að fornleifarannsóknum í Herjólfsdal ásamt Vestmannaeyjabæ og Sögusetri 1627.

Útgáfa

Rit Sögufélags Vestmannaeyja fékk nafnið Eyjaskinna. Nafnið var fengið frá gestabók sem Þorsteinn Víglundsson hafði látið gera úr kálfsskinni sem enn er notuð við hátíðleg tilefni hjá Safnahúsi Vestmannaeyja.

Ritið hefur komið út 5 sinnum á árunum 1982 til 1992. Auk þess hafa komið út 4 fylgirit, það síðasta árið 2000. Útgáfa Eyjaskinnu tók við hlutverki Bliks sem kom út síðast árið 1980.


Heimildir