Rannveig Vigdís Gísladóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Rannveig Vigdís Gísladóttir húsfreyja, verslunarmaður, skrifstofumaður fæddist 27. janúar 1946 á Heimagötu 15.
Foreldrar hennar voru Gísli Gíslason stórkaupmaður, f. 22. nóvember 1917, d. 9. október 1980, og kona hans Guðrún Vigdís Sveinbjörnsdóttir húsfreyja, f. 15. mars 1917, d. 7. janúar 2009.

Börn Guðrúnar Vigdíosar og Gísla:
1. Haraldur Sveinbjörn Gíslason framkvæmdastjóri, f. 25. febrúar 1942 að Heimagötu 1. Kona hans Ólöf Auðbjörg Óskarsdóttir.
2. Rannveig Vigdís Gísladóttir, f. 27. janúar 1946 að Heimagötu 15. Maður hennar Hjörtur Hermannsson.
3. Kristín Elín Gísladóttir, f. 26. nóvember 1947 að Heimagötu 15. Maður hennar Gunnlaugur Ólafsson.
4. Helga Gísladóttir, f. 18. september 1951 að Heimagötu 15. Maður hennar Geir Sigurlásson.

Rannveig var með foreldrum sínum í æsku.
Hún varð 4. bekkjar gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum 1963.
Rannveig vann við fyrirtæki föður síns, síðar hjá Lífeyrissjóði Vestmannaeyja.
Þau Hjörtur giftu sig 1967, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í Borg við Heimagötu 3, við Bakkastíg 7 við Gos 1973, á Faxastíg 7 eftir Gos og síðan við Dverghamar.

I. Maður Rannveigar, (7. janúar 1967), er Hjörtur Hermannsson frá Akureyri, útgerðarstjóri, f. 1. mars 1941.
Börn þeirra:
1. Gísli Hjartarson, rekur Prentsmiðjuna Eyrúnu og Crossfit, f. 1. maí 1967. Kona hans er Jóhanna Jóhannsdóttir.
2. Kolbrún Aðalbjörg Hjartardóttir, flugfreyja, f. 26. febrúar 1969. Fyrrum maður hennar Hafliði Sævarsson. Sambúðarmaður Albert Óskarsson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Hjörtur og Rannveig.
  • Íslendingabók.
  • Prestþjónustubækur.
  • Skipstjóra- og stýrimannatal. Guðmundur Jakobsson. Ægisútgáfan 1979.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.