Ragnheiður Helgadóttir (Garðhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ragnheiður Helgadóttir frá Húsavík, húsfreyja fæddist 31. maí 1917 í Hallgrímsbæ á Húsavík og lést 22. júní 1974.
Foreldrar hennar voru Helgi Flóventsson vélamaður, sjómaður, f. 14. janúar 1878 í Skörðum, S-Þing., d. 2. júní 1942, og kona hans Jóhanna Pétrína Jóhannsdóttir frá Þverá í Reykjahverfi, S-Þing., húsfreyja, f. 31. desember 1880 á Ísólfsstöðum, d. 22. júlí 1957.

Ragnheiður var með foreldrum sínum í æsku, í Hallgrímsbæ og á Helgastöðum á Húsavík.
Þau Ragnar giftu sig 1940, eignuðust eitt barn í Eyjum, en alls 4 börn.
Þau bjuggu í Garðhúsum við Kirkjuveg 14 við fæðingu Jóhönnu 1941, fluttu til Húsavíkur, bjuggu þar um árabil, fluttu til Hafnarfjarðar, bjuggu síðast á Laufvangi 1.
Ragnheiður lést 1974. Ragnar flutti í Mosfellsbæ, bjó þar síðustu 11 ár sín. Hann lést 1996.

I. Maður Ragnheiðar, (22. desember 1940), var Ragnar Jónsson frá Sokkseyri, sjómaður, matsveinn, hótelstjóri f. þar 21. júní 1917, d. 5. nóvember 1996.
Börn þeirra:
1. Jóhanna Ragnarsdóttir húsfreyja, f. 13. júlí 1941 í Garðhúsum við Kirkjuveg 14. Maður hennar Einar Sigurður Björnsson, látinn.
2. Guðný Ragnarsdóttir, f. 9. júní 1946.
3. Jón Ragnarsson, f. 23. janúar 1950.
4. Helgi Flóvent Ragnarsson, f. 2. ágúst 1951.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.