Rósa Stefánsdóttir (Framtíð)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Rósa Kristín Stefánsdóttir frá Framtíð við Hásteinsveg 11, húsfreyja fæddist 1. desember 1915 á Kirkjulandi og lést 12. janúar 1976.
Foreldrar hennar voru Stefán Finnbogason vélstjóri, skipstjóri, málari, f. 1. júlí 1890, d. 2. júní 1968, og kona hans Rósa Árnadóttir húsfreyja, f. 17. júní 1894, d. 12. febrúar 1972.

Börn Rósu og Stefáns:
1. Rósa Kristín Stefánsdóttir, f. 1. desember 1915 á Kirkjulandi, d. 12. janúar 1976.
2. Garðar Stefánsson, f. 5. febrúar 1917, d. 30. desember 1945.
3. Sigríður Stefánsdóttir, f. 19. september 1918 í Hlíð, d. 24. maí 1985.
4. Björn Ragnar Stefánsson, f. 19. júní 1921, d. 6. apríl 1984.
5. Laufey Stefánsdóttir, f. 15. febrúar 1923 í Framtíð, d. 30. desember 1995.
6. Ásta Stefánsdóttir, f. 15. desember 1925 í Framtíð, síðast í Grindavík, d. 24. júní 1999.
7. Stefanía Stefánsdóttir, f. 31. desember 1927 í Framtíð, d. 8. september 2002.
8. Erna Stefánsdóttir, f. 18. júlí 1932 í Framtíð, síðast í Reykjavík, d. 3. nóvember 2019.

Rósa var með foreldrum sínum í æsku.
Hún var fiskiðnaðarkona og afgreiddi í mjólkurbúð.
Þau Brynjólfur giftu sig 1945, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu við Hásteinsveg 56. Brynjólfur fórst af togaranum Bjarnarey 1949.
Rósa flutti til Reykjavíkur í Gosinu 1973, bjó síðast í Keilufelli 9.
Hún lést 1976.

I. Maður Rósu, (28. febrúar 1945), var Brynjólfur Gunnar Guðlaugsson frá Lundi, sjómaður, f. 30. júlí 1921, d. 26. desember 1949.
Börn þeirra:
1. Stefán Brynjólfsson sjómaður, verkamaður, f. 23. október 1942, d. 4. ágúst 2021.
2. Guðlaugur Valur Brynjólfsson, f. 1. maí 1945.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.