Páll Þór Guðmundsson
Páll Þór Guðmundsson, útgerðarstjóri fæddist 29. janúar 1963.
Foreldrar hans Guðmundur Ingi Guðmundsson, skipstjóri, f. 22. október 1932, d. 14. júní 2006, og kona hans Kristín Pálsdóttir, húsfreyja, f. 5. maí 1933, d. 2. maí 2014.
Börn Kristínar og Guðmundar Inga:
1. Guðmundur Huginn Guðmundsson skipstjóri, f. 29. maí 1960. Kona hans Þórunn Gísladóttir.
2. Bryndís Anna Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 26. maí 1961 á Grímsstöðum. Maður hennar Grímur Gíslason.
3. Páll Þór Guðmundsson útgerðarstjóri, f. 29. janúar 1963. Kona hans Rut Haraldsdóttir.
4. Gylfi Viðar Guðmundsson skipstjóri, f. 31. ágúst 1964. Sambúðarkona Sólrún Erla Gunnarsdóttir.
Þau Rut giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau búa við Stapaveg 9.
I. Kona Páls Þórs er Rut Haraldsdóttir, húsfreyja, kaupmaður, skrifstofustjóri, f. 26. desember 1964. Foreldrar hennar Haraldur Sveinbjörn Gíslason, f. 25. febrúar 1942, og Ólöf Auðbjörg Óskarsdóttir, f. 28. júlí 1941.
Börn þeirra:
1. Haraldur Pálsson, f. 24. apríl 1989.
2. Kristinn Pálsson, f. 5. maí 1992.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Páll Þór.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.