Margrét Guðjónsdóttir (Túngötu)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Margrét Guðjónsdóttir úr Reykjavík, húsfreyja fæddist 19. ágúst 1932.
Foreldrar hennar voru Guðjón Runólfsson bókbandsmeistari, f. 9. júlí 1907 í Reykjavík, d. 16. september 1999, og Kristín María Gísladóttir húsfreyja, f. 1. september 1909, d. 31. ágúst 1972.

Margrét var með foreldrum sínum í æsku.
Hún vann við bókband með föður sínum, síðar vann hún hjá Breiðholtsbakaríi.
Þau Hörður giftu sig 1953 í Reykjavík, eignuðust 6 börn og fóstruðu barn um langt skeið. Þau bjuggu á Reynifelli við Kirkjuveg 66, síðar á Túngötu 21.
Þau Hörður fluttu til Reykjavíkur 1964.
Hörður lést 2008.

Maður Margrétar, (22. ágúst 1953), var Hörður Ágústsson frá Sólvangi, kaupmaður, verkstjóri, f. 22. ágúst 1932, d. 22. febrúar 2008.
Börn þeirra:
1. Guðjón Harðarson trésmiður, verslunarmaður, f. 10. mars 1953. Kona hans Hrönn Ólafsdóttir.
2. Ágúst Harðarson símvirki, f. 25. maí 1955. Kona hans Bryndís Guðjónsdóttir.
3. Bjarni Harðarson lagerstjóri, f. 17. febrúar 1957, ókvæntur.
4. Hilmar Harðarson prentari, f. 26. júní 1960. Fyrrum kona hans Svanhildur Óskarsdóttir. Sambúðarkona hans Laila Ingvarsdóttir.
5. Fanney Harðardóttir innanhússarkitekt, flugfreyja, f. 30. júní 1967. Maður hennar Guðmundur Már Þorvarðarson.
6. María Harðardóttir hársnyrtir, f. 25. mars 1972. Maður hennar Siggeir Kolbeinsson.
Fósturbarn hjónanna:
7. Unnur M. Friðriksdóttir, f. 6. september 1967, d. 5. febrúar 2013, ógift.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.