María Eyvindsdóttir Böðvarsson (Bifröst)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

María Vilhelmína Heilmann Eyvindsdóttir Böðvarsson húsfreyja, fæddist 25. febrúar 1901 í Reykjavík og lést 12. desember 1983.
Foreldrar hennar voru Eyvindur Árnason trésmíðameistari, útfararstjóri, f. 9. október 1874, d. 2. apríl 1950, og kona hans Soffía Kristjana Heilmann húsfreyja, f. 4. júlí 1879, d. 17. október 1954.

Þau Árni giftu sig 1920, eignuðust sex börn. Þau fluttu til Eyja 1925. Þau bjuggu á Bifröst við Bárustíg 11, ráku rakarastofu, frystihús og útgerð í Eyjum og sendu fisk á erlendan markað. Þau fluttu á Seltjarnarnes 1940 og frá 1951 bjuggu þau á Grenimel 35 í Reykjavík.
Árni lést 1975 og María 1983.

I. Maður Maríu, (21. febrúar 1920), var Árni Böðvarsson rakarameistari, útgerðarmaður, fiskverkandi, f. 28. júní 1890 í Stokkseyerarsókn, d. 14. apríl 1975.
Börn þeirra:
1. Fríða Soffía Árnadóttir, f. 19. maí 1921, d. 16. janúar 1932.
2. Erna Böðvars Árnadóttir húsfreyja í Hafnarfirði, f. 15. desember 1922, d. 18. maí 2008. Maður hennar Jón Bjarni Kristinsson.
3. Eyvindur Árnason fiskverkandi, verksmiðjurekandi í Kópavogi, f. 17. febrúar 1926, d. 15. maí 2012. Kona hans Margrét Gestsdóttir.
4. Böðvar Árnason fiskverkandi, verksmiðjurekandi, kaupmaður, f. 19. maí 1927, d. 23. mars 2010. Kona hans Guðmunda Sesselja Gunnarsdóttir.
5. Gunnar Árnason fiskverkandi, verksmiðjurekandi í Kópavogi, f. 11. desember 1928, d. 19. febrúar 2016. Kona hans Stefanía Stefánsdóttir, látin. Sambúðarkona hans Svava Sigmundsdóttir.
6. Gottfred Árnason viðskiptafræðingur, f. 13. desember 1932. Kona hans Ásdís Jónína Magnúsdóttir hússtjórnarkennari, f. 23. desember 1931 á Ólafsfirði.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.