Jóhann Gísli Anders Bjarnasen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jóhann Gísli Anders Bjarnasen fæddist 30. desember 1873 í Garðinum og mun hafa látist í Vesturheimi.
Foreldrar hans voru Gísli Bjarnasen verslunarstjóri, f. 30. maí 1837, d. 16. mars 1888, og kona hans Dortija Maria Andersdóttir Bjarnasen húsfreyja í Garðinum f. 3. júní 1839, d. 7. apríl 1916.

Börn Maríu og Gísla voru:
1. Johan Carl Anders Bjarnasen, f. 5. febrúar 1869, d. 4. maí 1875 „úr Diphtheria“, (barnaveiki).
2. María Sigríður Ásdís Bjarnasen, f. 12. mars 1871. Hún fluttist til Danmerkur.
3. Jóhann Gísli Anders Bjarnasen, f. 30. desember 1873. Hann fluttist til Danmerkur.
4. Rósa Jónína Petrea Bjarnasen, f. 20. ágúst 1875 í Stakkagerði. Hún fluttist til Danmerkur.
5. Jóhanna Soffía Ágústa Bjarnasen, f. 24. ágúst 1877. Hún fluttist til Danmerkur.
6. Níels Kristinn Benedikt Bjarnasen, f. 23. febrúar 1879. Hann fluttist til Danmerkur.
7. Anders Peter Asmund Bjarnasen, f. 2. febrúar 1882 í Pétursborg. Hann fluttist til Danmerkur.

Jóhann var með fjölskyldu sinni í Garðinum 1873, í Nöjsomhed 1974, í Gíslahúsi, ,,annars nafnlaust hús‘‘ 1875, í Garðinum 1876 til 1880, í Pétursborg í lok árs 1881, á Vilborgarstöðum 1882 og þaðan fór fjölskyldan til Danmerkur 1883.
Faðir hans var þar daglaunamaður og móðir hans hafði tekjur af saumaskap.
Gísli faðir hans lést 1888 og í æsku var Jóhann með móður sinni, sem hélt heimili fyrir börnin með saumaskap og útleigu húsnæðis.
Jóhann var verslunarþjónn 1901, bjó með Kamillu í Gentoftegade 1905.
Samkv. Sögu Vestmannaeyja fluttist hann til Vesturheims og ílengdist þar.
Hann lést í Lake í Illinois-fylki.

Kona hans var Kamilla Sofie Magdalena fædd Hansen, húsfreyja, f. 7. febrúar 1870.
Barn þeirra hér:
1. Harold Svend Helge Gisle Brynjulf Bjarnesen, f. 1898 í Danmörku, d. í Cook í Illinois-fylki í Bandaríkjunum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.