Magnús Sigurðsson (Hásteinsvegi 7)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Magnús Sigurðsson frá Gafli í Víðidalstungusókn, Hún., vélstjóri, vörubifreiðastjóri fæddist 25. mars 1930 og lést 31. mars 2013.
Foreldrar hans voru Sigurður Magnússon Skagfjörð f. 13. maí 1888, d. 22. nóvember 1961, og Emilía Sigfúsdóttir, f. 13. nóvember 1898, d. 8. september 1994.

Þau Anna giftu sig. Þau hófu búskap á Drangsnesi, Strand., fluttu til Eyja um 1955, bjuggu við Hásteinsveg 7 og á Stóru-Heiði við Sólhlíð 19 og frá um 1960 í Þorlákshöfn.
Magnús lést 2013.
Anna bjó síðast á Selfossi.

I. Kona Magnúsar var Anna Jóhannsdóttir frá Drangsnesi, Strandas., húsfreyja, f. 14. maí 1936, d. 7. janúar 2024.
Börn þeirra:
1. Valdís Magnúsdóttir, húsfreyja í Eyjum, f. 25. ágúst 1954 á Drangsnesi. Maður hennar Gunnar Halldórsson.
2. Sigurður Magnússon, smiður, verkstjóri, f. 9. nóvember 1955 á Stóru-Heiði, d. 14. desember 2022. Kona hans Katrín Gunnarsdóttir.
3. Jóhann Magnússon húsamiður, verktaki, f. 17. október 1957. Kona hans Sigríður Karlsdóttir.
4. Magnús Ragnar Magnússon, húsasmiður, f. 3. september 1975. Kona hans Hólmfríður Einarsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.