Jóhann Magnússon (Stóru-Heiði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jóhann Magnússon frá Stóru-Heiði við Sólhlíð 19, húsasmiður, verktaki fæddist þar 17. október 1957.
Foreldrar hans voru Magnús Sigurðsson, vélstjóri, bifreiðastjóri, f. 25. mars 1930, d. 31. mars 2013 og kona hans Anna Jóhannsdóttir húsfreyja, f. 14. maí 1936, d. 7. janúar 2024.

Börn Önnu og Magnúsar:
1. Valdís Magnúsdóttir, húsfreyja í Eyjum, f. 25. ágúst 1954 á Drangsnesi. Maður hennar Gunnar Halldórsson.
2. Sigurður Magnússon, smiður, verkstjóri, f. 9. nóvember 1955 á Stóru-Heiði, d. 14. desember 2022. Kona hans Katrín Gunnarsdóttir.
3. Jóhann Magnússon, húsasmiður, verktaki, f. 17. október 1957. Kona hans Sigríður Karlsdóttir.
4. Magnús Ragnar Magnússon, húsasmiður, f. 3. september 1975. Kona hans Hólmfríður Einarsdóttir.

Jóhann lærði húsasmíði. Hann er verktaki.
Þau Sigríður giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau búa í Þorlákshöfn.

I. Kona Jóhanns er Sigríður Karlsdóttir, f. 23. maí 1961. Foreldrar hennar Karl Elías Karlsson, f. 10. nóvember 1922, d. 26. desember 2014, og Sigríður Jónsdóttir, f. 4. október 1928, d. 22. mars 2004.
Börn þeirra:
1. Auðunn Jóhannsson, húsasmíðameistari, f. 18. september 1980. Kona hans Heiða Sólveig Haraldsdóttir.
2. Jóhann Arnar Jóhannsson, f. 16. júlí 1986.
3. Svavar Berg Jóhannsson, tölvunarfræðingur, f. 16. júlí 1986.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.