Magnús Þórðarson (Sléttabóli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Magnús Ingibergur Þórðarson frá Sléttabóli á Brunasandi í Hörglandshreppi, V.-Skaft., sjómaður, verkamaður fæddist þar 5. mars 1895 og lést 2. janúar 1983 í Reykjavík.
Foreldrar hans voru Þórður bóndi á Sléttabóli á Brunasandi í V-Skaft. og í Neðri-Dal þar, f. 8. október 1854 á Syðri-Velli í Flóa, d. 8. apríl 1945 í Neðri-Dal, Magnúsar bónda í Brandshúsum í Gaulverjabæjarhreppi, Árn., f. 1828, Guttormssonar og konu Magnúsar í Brandshúsum, Ingibjargar húsfreyju Þórðardóttur.
Móðir Magnúsar og kona (1889) Þórðar bónda var Eygerður húsfreyja, f. 23. marz 1866 á Orustustöðum í V-Skaft., d. 1. janúar 1954 í Neðri-Dal, Magnúsar bónda á Sléttabóli, f. 1834, d. 1888, Magnússonar og konu (1864) Magnúsar á Sléttabóli, Sigríðar húsfreyju, f. 1838, d. 1925, Hávarðsdóttur.

Börn Eygerðar og Þórðar – í Eyjum:
1. Þórður Þórðarson formaður á Sléttabóli, f. 12. janúar 1893, drukknaði 1. mars 1942.
2. Sigurður Þórðarson verkamaður, f. 24. janúar 1894, d. 10. ágúst 1978.
3. Magnús Ingibergur Þórðarson verkamaður, f. 5. mars 1895, d. 2. janúar 1983.
4. Ásbjörn Þórðarson formaður, síðar netamaður f. 14. desmber 1899, d. 10. nóvember 1974.
5. Hávarður Þórðarson, f. 26. janúar 1902, d. 16. janúar 1934.

Magnús var með foreldrum sínum, á Sléttabóli 1901 og 1910, vinnumaður hjá þeim í Neðri-Dal í Mýrdal 1912-1927.
Magnús eignaðist barn með Sigríði Gísladóttur 1921.
Hann flutti til Eyja 1927, var sjómaður á Grímsstöðum við Skólaveg 27 á því ári, síðar verkamaður í Reykjavík.
Þau Sigríður giftu sig 1928, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu á Grímsstöðum við Skólaveg 27 og við Skólaveg 25, fluttu til Hafnarfjarðar 1935, síðan til Reykjavíkur. Þau bjuggu þar síðan, í Heklu við Lækjartorg og síðast við Lönguhlíð 23.
Sigríður lést 1982 og Magnús 1983.

I. Barnsmóðir Magnúsar var Jónína Sigríður Gísladóttir frá Ketilsstöðum í Mýrdal, verkakona, bústýra, f. 1. júlí 1900, d. 2. desember 1993.
Barn þeirra:
1. Þórarinn Magnússon kennari, skólastjóri, f. 17. febrúar 1921, d. 18. janúar 1999.

II. Kona Magnúsar, (7. apríl 1928), var Sigríður Sigmundsdóttir frá Breiðuhlíð í Mýrdal, húsfreyja, f. 18. mars 1897, d. 18. maí 1982.
Börn þeirra:
1. Sigmundur Grétar Magnússon læknir, sérfræðingur í blóðsjúkdómum, yfirlæknir, dósent, f. 22. desember 1927 á Grímsstöðum, d. 26. mars 2017.
2. Þórður Eydal Magnússon tannlæknir, prófessor í tannréttingum, f. 11. júlí 1931 í Eyjum, d. 19. október 2019.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Manntöl.
  • Pers.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.