Lilja Þorleifsdóttir (Breiðholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Lilja Þorleifsdóttir.
Lilja og Brynjúlfur.
Brynjúlfur og Lilja.

Lilja Þorleifsdóttir húsfreyja fæddist á Gjögri í Strandasýslu 17. júní 1922 og lést 4. september 2008.
Foreldrar hennar voru Þorleifur Friðrik Friðriksson bóndi og sjómaður í Þorleifshúsi á Gjögri, f. 8. september 1891 á Kjörvogi í Strandas., d. 12. október 1964, og kona hans Hjálmfríður Ragnheiður Sigurbjörg Hjálmarsdóttir húsfreyja, f. 18. mars 1896 á Gjögri, d. 15. júlí 1973. Börn Hjálmfríðar og Þorleifs, - í Eyjum voru:
1. Lilja Þorleifsdóttir húsfreyja, f. 17. júní 1922, d. 4. september 2008.
2. Klara Þorleifsdóttir vinnukona, fiskverkakona, starfsmaður á sjúkrahúsi, f. 25. júlí 1926, d. 30. janúar 2011.
3. Hjálmar Þorleifsson rafvirki, f. 15. desember 1927, d. 22. janúar 2011.

Lilja var með foreldrum sínum í æsku og fluttist með þeim að Litlanesi inn af Gjögri.
Hún réri til fiskjar með afa sínum og starfaði við þvotta á Djúpavík á sumrum.
Lilja og Brynjólfur kynntust á Djúpavík, þar sem Brynjúlfur var rafvirki við síldarverksmiðjuna. Hún fluttist til Eyja 1947 og þau giftu sig 1948. Þau bjuggu í Breiðholti, byggðu Hólagötu 39 og fluttu þangað 1957 og bjuggu þar, uns þau fluttust í Kópavog 1999, en 2006 fluttu þau til Eyja og bjuggu að Áshamri 5.
Um tíma vann Lilja í þvottahúsinu Straumi og í Lifrarsamlaginu.
Lilja lést á Sjúkrahúsinu 2008 og Brynjúlfur 2023.


I. Maður Lilju, (21. desember 1948), var Brynjúlfur Jónatansson frá Breiðholti, rafvirkjameistari, f. 23. júní 1924.
Börn þeirra:
1. Steinunn Brynjúlfsdóttir húsfreyja, lífeindafræðingur, sálfræðingur, f. 30. september 1948, d. 19. ágúst 2008. Maður hennar Halldór Guðbjarnason.
2. Ragnheiður Brynjúlfsdóttir húsfreyja, viðskiptafræðingur, skrifstofustjóri, f. 22. febrúar 1952, d. 4. júlí 2011. Maður hennar Smári Grímsson.
3. Hjálmar Brynjúlfsson rafvirkjameistari, rafverktaki, f. 22. mars 1953. Kona hans Margrét Ásælsdóttir.
4. Jónatan Brynjúlfsson rafvirkjameistari, f. 11. mars 1954, d. 17. mars 1984. Fyrri kona hans Árný Sigríður Baldvinsdóttir, látin. Síðari kona hans Heiða TH. Kristjánsdóttir.
5. Anna Brynjúlfsdóttir móttökuritari, f. 13. júlí 1955.
6. Rúnar Páll Brynjúlfsson kvikmyndasýningastjóri, tæknimaður hjá Valitor, f. 9. ágúst 1958. Kona hans Edda S. Jóhannsdóttir.
7. Brynhildur Brynjúlfsdóttir húsfreyja, bankastarfsmaður, f. 10. janúar 1960. Maður hennar Ástþór Rafn Pálsson.
Fósturdóttir hjónanna er
8. Steinunn Jónatansdóttir hjúkrunarfræðingur, við framhaldsnám í Kanada, f. 20. september 1973. Hún er dóttir Jónatans Brynjúlfssonar og konu hans Árnýjar Sigríðar Baldvinsdóttur húsfreyju, f. 29. nóvember 1955, d. 19. maí 1979.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 13. september 2008. Minning.
  • Prestþjónustubækur.
  • Rafvirkjatal. Ritstjóri: Þorsteinn Jónsson, Gunnar Guðmundsson og fleiri. Þjóðsaga hf. 1995.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.