Klara Þorleifsdóttir (Bólstaðarhlíð)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Klara Þorleifsdóttir.

Klara Þorleifsdóttir frá Gjögri í Árneshreppi, Strand., verkakona, starfsmaður á Rannsóknastofu fæddist þar 25. júlí 1926 og lést 30. janúar 2011.
Foreldrar hennar voru Þorleifur Friðrik Friðriksson bóndi og sjómaður í Þorleifshúsi á Gjögri, f. 8. september 1891 á Kjörvogi í Strandas., d. 12. október 1964, og kona hans Hjálmfríður Ragnheiður Sigurbjörg Hjálmarsdóttir húsfreyja, f. 18. mars 1896 á Gjögri, d. 15. júlí 1973.

Börn Hjálmfríðar og Þorleifs, - í Eyjum voru:
1. Lilja Þorleifsdóttir húsfreyja, f. 17. júní 1922, d. 4. september 2008.
2. Klara Þorleifsdóttir vinnukona, fiskverkakona, starfsmaður á sjúkrahúsi, f. 25. júlí 1926, d. 30. janúar 2011.
3. Hjálmar Þorleifsson rafvirki, f. 15. desember 1927, d. 22. janúar 2011.

Klara fór ung að heiman og vann fyrir sér, var í vist, m.a. á Siglufirði og í Reykjavík.
Hún eignaðist barn með Jóni 1948, flutti til Eyja með drenginn haustið 1954. Þar var hún í vist, vann síðan við fiskiðnað til Goss 1973. Eftir flutning til Reykjavíkur vann hún á rannsóknastofu á Landspítalanum og vann þar til starfsloka vegna aldurs, síðast var hún sérhæfður aðstoðarmaður þar.
Hún lést 2011.

I. Barnsfaðir Klöru var Jón Hjaltason lögfræðingur, hæstaréttarmálaflutningsmaður, f. 27. maí 1924, d. 7. desember 2017.
Barn þeirra:
1. Dr. Þorleifur Jónsson málfræðingur, kennari, bókavörður, f. 14. maí 1948 á Litlanesi við Reykjafjörð, Strand. Kona hans Halldóra Andrésdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.


.