Kristín Karólína Þórðardóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Kristín Karólína Þórðardóttir húsfreyja í Norðurgarði eystri, húsfreyja fæddist 4. júní 1933 á Kvíabryggju á Snæfellsnesi og lést 22. janúar 1984 í Eyjum.
Foreldrar hennar voru Þórður Valdimar Þorvaldsson frá Skerðingsstöðum í Grundarfirðir, sjómaður í Rimabæ á Snæfellsnesi, verkamaður í Reykjavík, f. 22. ágúst 1906, d. 28. desember 1993, og Ingibjörg Sveinsdóttir frá Króki í Grundarfirði , f. 9. ágúst 1909, d. 22. apríl 1948. Fósturforeldrar Kristínar voru föðurforeldrar hennar Þorvaldur Þórðarson frá Skerðingsstöðum og Kristín Karólína Jakobsdóttir.

Kristín fór snemma að vinna. Hún annaðist Kristínu fóstru sína og ömmu uns hún lést. Hún hélt síðan til Eyja.
Þau Stefán giftu sig, eignuðust sjö börn. Þau Þau bjuggu á Skansinum við Strandveg 1 og í Eystri-Norðurgarði. Þau fluttu til Akraness í Gosinu 1973 og aftur til Eyja eftir Gos.
Kristín lést 1984 og Stefán 2004.

I. Maður Kristínar var Stefán Jóhannsson ungverskrar ættar, verkamaður, f. 11. febrúar 1935, d. 31. ágúst 2004.
Börn þeirra:
1. Þorvaldur S. Stefánsson, f. 29. ágúst 1959. Kona hans Sveinbjörg Kristmundsdóttir.
2. Kristinn Ingi Stefánsson, f. 23. september 1960. Kona hans Elísabet Þrastardóttir.
3. Ragnar Þór Stefánsson, f. 11. nóvember 1961. Kona hans Lísa Skaftadóttir.
4. Jóhann Hjaltalín Stefánsson, f. 8. október 1964. Kona hans Berglind Helgadóttir.
5. Ómar Stefánsson, f. 24. janúar 1966. Kona hans Þórdís Jóelsdóttir.
6. Snædís Stefánsdóttir, f. 25. október 1967. Maður hennar Jónsteinn Jensson.
7. Ingibjörg Stefánsdóttir, f. 13. júní 1970. Maður hennar Jóhann Reynisson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.