Kristín Benediktsdóttir (Ásgarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Sigurður Guðbrandsson og Kristín Benediktsdóttir.

Kristín Benediktsdóttir húsfreyja í Ásgarði í Ásahreppi og Götuhúsum á Stokkseyri, síðar í Eyjum fæddist 9. júlí 1877 og lést 4. ágúst 1948.
Foreldrar hennar voru Benedikt Árnason vinnumaður á Stóru-Völlum á Landi, f. 30. júlí 1924, d. 10. janúar 1907, og Kristín Guðbrandsdóttir vinnukona í Stúfholti, f. 11. apríl 1839, d. 18. nóvember 1923.

Kristín var 13 ára niðursetningur í Bóluhjáleigu á Rangárvöllum 1890, 24 ára vinnukona þar 1901.
Þau Sigurður giftu sig 1905, byggðu grasbýlið Ásgarð 1908 og bjuggu þar til 1915, en fluttust skömmu síðar að Garðhúsum á Stokkseyri. Þar bjuggu þau til ársins 1946, er þau fluttust til Eyja. Þau bjuggu á Helgafellsbraut 17 hjá Guðbjörgu dóttur sinni og Jóni Vigfússyni.
Kristín lést 1948 og Sigurður 1959.

Maður Kristínar, (21. maí 1905), var Sigurður Guðbrandsson bóndi, f. 25. október 1878, d. 17. ágúst 1959.
Börn þeirra:
1. Guðrún Lára Sigurðardóttir, f. 24. júní 1904, d. 27. október 1917.
2. Júlía Sigurðardóttir, f. 28. júlí 1906, d. 24. ágúst 1908.
3. Þuríður Sigurðardóttir húsfreyja, f. 22. maí 1909, d. 6. apríl 1998.
4. Guðbjörg Helga Sigurðardóttir húsfreyja, f. 8. nóvember 1913, d. 13. ágúst 1978.
Fósturbarn þeirra var dóttir Þuríðar dóttur þeirra:
5. Sigríður Kristín Karlsdóttir húsfreyja, f. 28. apríl 1929 í Eyjum.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Holtamannabók II – Ásahreppur. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjórn: Ragnar Böðvarsson. Ásahreppur 2007.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.