Jens Hafsteinn Jónsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jens Hafsteinn Jónsson (Jens Magnusson), frá Sæbergi, málari, veggfóðrari, rak eigið fyrirtæki, fæddist 6. júní 1912 í Péturshúsi og lést 9. október 2011.
Foreldrar hans voru Jón Magnússon, frá Minna-Mosfelli í Grímsnesi, sjómaður í Eyjum, f. 24. febrúar 1873 í Grímsnesi og lést líklega í Vesturheimi, og kona hans Emerentíana Benediktsdóttir, húsfreyja á Kirkjubæ og Sæbergi, f. 15. október 1871 í Holtssókn u. Eyjafjöllum, d. líklega í Vesturheimi.

Börn Emerentíönu og Jóns :
1. Magnús Helgi Jónsson, f. 27. júní 1897 í Útskálasókn á Reykjanesi.
2. Bentína Mekkín Jónsdóttir, f. 22. október 1900 í Útskálasókn.
3. Elín Jónsdóttir, f. 6. september 1904 í Reykjavík.
4. Hinrik Kristinn Jónsson, f. 7. nóvember 1906 í Reykjavík.
5. Þuríður Jónsdóttir, f. 6. nóvember 1907 í Reykjavík.
6. Jens Hafsteinn Jónsson í Winnipeg, f. 6. júní 1912.

Jens fór til Vesturheims með foreldrum sínum 1913, var í Selkirk í Manitoba í Kanada 1916 og 1921.
Þau Evangeline Ruth gift sig.

I. Kona Jens var Evangeline Ruth McKenzie, f. 1920, d. 1989.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.