Elín Jónsdóttir (Kirkjubæ)
Elín Jónsdóttir (Eliene Gottfred), frá Kirkjubæ, hárgreiðslukona fæddist 6. september 1904 í Reykjavík og lést 22. nóvember 1973 í Vesturheimi.
Foreldrar hennar voru Jón Magnússon, frá Minna-Mosfelli í Grímsnesi, sjómaður í Eyjum, f. 24. febrúar 1873 í Grímsnesi og lést líklega í Vesturheimi, og kona hans Emerentíana Benediktsdóttir, húsfreyja á Kirkjubæ og Sæbergi, f. 15. október 1871 í Holtssókn u. Eyjafjöllum, d. líklega í Vesturheimi.
Börn Emerentíönu og Jóns :
1. Magnús Helgi Jónsson, f. 27. júní 1897 í Útskálasókn á Reykjanesi.
2. Bentína Mekkín Jónsdóttir, f. 22. október 1900 í Útskálasókn.
3. Elín Jónsdóttir, f. 6. september 1904 í Reykjavík.
4. Hinrik Kristinn Jónsson, f. 7. nóvember 1906 í Reykjavík.
5. Þuríður Jónsdóttir, f. 6. nóvember 1907 í Reykjavík.
6. Jens Hafsteinn Jónsson í Winnipeg, f. 6. júní 1912.
Elín fór til Vesturheims 1913 með foreldrum sínum. Hún var í Selkirk í Manitoba í Kanada 1916.
Hún lést 1973.
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.}}
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.