Júlía Guðný Hreinsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Júlía Hreinsdóttir, táknmálskennari og túlkur í Rvk fæddist 1. júlí 1964 í Eyjum.
Foreldrar hennar Hreinn Svavarsson frá Syðsta-Kambhóli í Eyjafirði, rafvirki, skipstjóri, f. 20. maí 1929, d. 20. september 1997, og kona hans Ellý Björg Þórðardóttir, húsfreyja, verslunar- og skrifstofumaður, f. 13. apríl 1936, d. 24. desember 2003.

Börn Hreins og Önnu Jensen:
1. Karl Smári Hreinsson, f. 24. október 1954.
2. Margrét Lind Hreinsdóttir, f. 29. júní 1956.
3. Guðrún Hreinsdóttir, f. 16. mars 1958, d. 12. maí 1958.
Börn Ellýjar og Hreins:
4. Jónas Þór Hreinsson skrifstofumaður, f. 25. nóvember 1959. Kona hans Marta Guðjóns Svavarsdóttir.
5. Júlía Guðný Hreinsdóttir táknmálskennari, túlkur, f. 1. júlí 1964. Fyrrum maður hennar Haukur Vilhjálmsson.
6. Arnþór Hreinsson teiknari, f. 1. júlí 1964.
7. Daði Hreinsson félagsmálafulltrúi, f. 24. mars 1969. Kona hans Lene Bernhöj.
Dóttir Hreins og fósturbarn Ellýjar:
2. Margrét Lind Hreinsdóttir, f. 29. júní 1956. Sambúðarmaður hennar Stefán Steingrímsson.

Júlía fæddist heyrnarlaus. Þau Arnþór eru tvíburar.
Hún var með foreldrum sínum, við Urðaveg 42 og Strenbugötu 2, en lærði í Heyrnleysingjaskólanum.
Júlía er táknmálskennari og túlkur.
Þau Haukur giftu sig 1987, eignuðust ekki börn. Þau skildu.

I. Maður Júlíu, (15. ágúst 1987, skildu), er Haukur Vilhjálmsson, táknmálsþulur, f. 19. apríl 1963. Foreldrar hans Vilhjálmur Bjarni Vilhjálmsson deildarstjóri, f. 24. júní 1932, d. 23. júlí 2015, og kona hans Guðrún Árnadóttir, f. 19. desember 1933.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.