Ritverk Árna Árnasonar/Jón Runólfsson (Bræðratungu)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Jón og Ágústa kona hans.

Kynning.

Jón Runólfsson frá Bræðratungu, vélvirkjameistari, forstöðumaður Áhaldahússins, fæddist 29. nóvember 1924 í Bræðratungu og lést 28. mars 2019.
Foreldrar hans voru Runólfur Runólfsson formaður og vélstjóri í Bræðratungu, f. 12. desember 1899, d. 4. júní 1983, og kona hans Unnur Þorsteinsdóttir frá Laufási, húsfreyja í Bræðratungu, f. 19. október 1904, d. 16. mars 1947.

Jón lærði vélvirkjun í Vélsmiðjunni Magna og fékk meistararéttindi í mars 1949.
Hann starfaði í Magna til 1. mars 1955, er hann varð yfirmaður Áhaldahúss bæjarins fram að Gosi 1973.
Hann vann í fyrstu í Vélsmiðju Guðmundar Arasonar en vann síðan við Sementsverksmiðju Ríkisins í Gufunesi.
Jón var einn af stofnendum Skátafélagsins Faxa og söng í kórum.
Þau Ágústa giftu sig 1945, eignuðust fimm börn, en misstu eitt þeirra á fyrsta ári þess.
Þau bjuggu í fyrstu á Heiðarvegi 30, en fluttust að Bræðratungu 1947, er móðir Jóns lést. Þau byggðu hús að Heimagötu 24 og bjuggu þar til Goss.
Við Gosið fluttust þau til Reykjavíkur, bjuggu í Espigerði 4. Þar bjuggu þau, uns þau fluttust á Hjúkrunarheimilið Mörk, Ágústa 2017 og Jón 2018.
Þau hjón létust bæði í mars 2019 með þriggja daga bili.

I. Kona Jóns, (6. janúar 1945), var Ingibjörg Ágústa Björnsdóttir húsfreyja, f. 19. október 1926. d. 31. mars 2019.
Börn Jóns og Ingibjargar Ágústu:
1. Ragnhildur Jónsdóttir húsfreyja á Dalvík, f. 19. október 1944, d. 14. febrúar 2013. Maður hennar var Bragi Jónsson smiður.
2. Unnur Jónsdóttir húsfreyja og bóndi í Kjós, f. 26. maí 1949. Maður hennar var Bjarni Kristjánsson bóndi.
3. Inga Jónsdóttir húsfreyja, f. 24. mars 1951. Maður hennar er Friðfinnur Finnbogason kaupmaður.
4. Jón Ágúst Jónsson, f. 29. september 1952, d. 6. febrúar 1953.
5. Jón Ágúst Jónsson smiður á Selfossi, f. 4. mars 1955. Kona hans er Margrét Jónsdóttir.

Jóns er getið í bjargveiðimannatali Árna Árnasonar, en án sérstakrar umsagnar.


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.