Jón Ágúst Jónsson (Bræðratungu)
Jón Ágúst Jónsson, húsasmiður á Selfossi í 10 ár, síðan mælingamaður hjá Vegagerðinni í 37 ár, fæddist 4. mars 1955.
Foreldrar hans Jón Runólfsson, vélvirkjameistari, forstöðumaður Áhaldahússins, f. 29. nóvember 1924, d. 28. mars 2019, og kona hans Ingibjörg Ágústa Björnsdóttir, húsfreyja, f. 19. október 1926, d. 31. mars 2019.
Börn Jóns og Ingibjargar Ágústu:
1. Ragnhildur Jónsdóttir húsfreyja á Dalvík, f. 19. október 1944, d. 14. febrúar 2013. Maður hennar var Bragi Jónsson smiður.
2. Unnur Jónsdóttir húsfreyja og bóndi í Kjós, f. 26. maí 1949, d. 15. nóvember 2024. Fyrrum maður hennar var Bjarni Kristjánsson bóndi.
3. Inga Jónsdóttir húsfreyja, f. 24. mars 1951. Maður hennar er Friðfinnur Finnbogason kaupmaður.
4. Jón Ágúst Jónsson, f. 29. september 1952, d. 6. febrúar 1953.
5. Jón Ágúst Jónsson smiður á Selfossi, mælingamaður, f. 4. mars 1955. Kona hans er Margrét Jónsdóttir.
Þau Margrét giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau búa á Selfossi.
I. Kona Jóns Ágústs er Margrét Jónsdóttir, frá Selfossi, húsfreyja, sjúkraliði, f. 2. nóvember 1953. Foreldrar hennar Jón Kjartansson, f. 31. október 1919, d. 24. janúar 1984, og Soffía Ólafsdóttir, f. 8. ágúst 1924, d. 14. maí 2019.
Börn þeirra:
1. Birgir Örn Jónsson, f. 11. mars 1973.
2. Ester Jónsdóttir, f. 22. maí 1980.
3. Bjarki Jónsson, f. 17. janúar 1989.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Jón Ágúst.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.