Jón Hjaltason (verkstjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jón Hjaltason frá Rifgirðingum í Narfeyrarsókn á Snæfellsnesi, verkamaður, verkstjóri fæddist þar 28. mars 1898 og lést 7. desember 1972.
Foreldrar hans voru Hjalti Jónsson leiguliði, bóndi, f. 13. ágúst 1844, d. 14. júlí 1928, og kona hans Eyvör Arnoddsdóttir, f. 27. apríl 1858, d. í mars 1945. Fósturforeldrar Ólafur Jónsson trésmíðameistari í Gíslabæ í Stykkishólmssókn 1910, í Ólafsbæ í Stykkishólmi 1920, f. 27. júlí 1858, d. 13. janúar 1941, og Pálína Stensa Jónsdóttir frá Gilsbakkasókn í Mýrasýslu, húsfreyja, f. 2. apríl 1855, d. 3. maí 1939.

Jón var með foreldrum sínum í Rifgirðingum 1901, var fóstursonur Ólafs og Pálínu 1910, verkamaður í Stykkishólmi 1920, verkamaður á Bergi í Skildinganesi í Reykjavík 1930, verkstjóri hjá Vegagerð ríkisins.
Þau Eva giftu sig, fluttust til Eyja, eignuðust Hjalta Ólaf þar 1926. Þau bjuggu í Háaskála við Brekastíg 11b og í Langa-Hvammi. Þau Eva fluttu til Stykkishólms og síðan til Reykjavíkur, bjuggu á Básenda 10. Síðar fluttu þau til Keflavíkur í skjól dætra sinna þar.
Jón lést 1972 á Sjúkrahúsinu í Keflavík.
Eva lést 1993.

I. Kona Jóns var Eva Sæmundsdóttir frá Spjör í Eyrarsókn á Snæfellsnesi, húsfreyja, f. 22. ágúst 1908 í Ólafsvík, d. 16. desember 1993.
Börn þeirra:
1. Hjalti Ólafur Jónsson múrarameistari, f. 5. október 1926, d. 25. ágúst 2006. Kona hans Halldóra Þórunn Sveinbjörnsdóttir.
2. Ragnheiður Elín Jónsdóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 9. desember 1927, d. 2. október 2021. Maður hennar Ingvi Brynjar Jakobsson.
3. Jóhannes Bjarni Jónsson rafvirkjameistari, f. 27. mars 1934, d. 5. október 2006.
4. Sæbjörg Elsa Jónsdóttir húsfreyja, bankastarfsmaður, f. 30. desember 1941, d. 19. október 2011.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.