Jón Guðmundsson (Mosfelli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jón Guðmundsson útgerðarmaður og bóndi í Breiðholti og á Mosfelli fæddist 25. september 1879 í Fljótshlíð og lést 18. febrúar 1927.
Foreldrar hans voru Guðmundur Eiríksson bóndi í Ey í Landeyjum, f. 22. febrúar 1843, d. 4. maí 1883 og Þórey Jónsdóttir vinnukona, f. 29. nóvember 1854, d. 3. desember 1940.

Jón var líklega með föður sínum og konu hans í Ey 1880, með vinnukonunni móður sinni á Krossi í A-Landeyjum 1890, var vinnumaður á Skækli (Guðnabakka) þar 1901. Þar var Jenný vinnukona og þau höfðu eignast Kristin þar 1899.
Þau Jenný giftu sig 1902 og fluttust til Eyja 1903, bjuggu á Garðstöðum 1907.
Jón og Jónatan Snorrason reistu Breiðholt 1908. Á því ári kom Leifur Þórðarson til þeirra í fóstur og Þórður Arnfinnsson 1916. 1917 var Sigríður Friðriksdóttir komin til þeirra. Þau voru komin að Mosfelli 1918 með Kristin son sinn og fósturbörnin Sigríði, Þórð og Leif. Hjá þeim var Kristín Jónsdóttir móðir Jennýjar, sem komið hafði til þeirra 1908.
Jón tók þátt í útgerð á fyrstu árum vélbátaútgerðar í Eyjum og var einn af stofnendum Kaupfélagsins Fram og var fyrsti formaður í stjórn þess. Hann rak auk þess búskap.
Jón lést 1927.

Kona Jóns, (19. október 1902), var Jenný Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 23. janúar 1879 á Bakka í A-Landeyjum, d. 14. apríl 1985.
Barn þeirra var
1. Kristinn Jónsson bóndi, smiður, póstur á Mosfelli, f. 26. maí 1899 á Skækli (Guðnastöðum) í A-Landeyjum, d. 13. júní 1969.
Fósturbörn þeirra voru:
2. Leifur Þórðarson, f. 19. júní 1907, d. 4. maí 1930.
3. Þórður Arnfinnsson, f. 14. apríl 1914, d. 13. desember 1966. Hann var systursonur Jennýjar.
4. Sigríður Friðriksdóttir húsfreyja og fiskverkakona, verkstjóri, f. 3. júlí 1908, d. 28. febrúar 2011.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.