Ingibjörg Þorvarðsdóttir Möller

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ingibjörg Þorvarðsdóttir Möller húsfreyja í Juliushaab, síðar í Túni og víðar, fæddist á Rifi í Ingjaldshólssókn á Snæfellsnesi 28. október 1821 og lést 7. september 1899.
Foreldrar hennar voru Þorvarður Sumarliðason þurrabúðarmaður á Rifi, stýrimaður í Flatey á Breiðafirði, f. 31. mars 1798, d. 30. september 1831, og Sigríður Þórðardóttir fráskilin bústýra hans.

Ingibjörg var 14 ára tökubarn á Þæfusteini í Ingjaldshólssókn á Snæfellsnesi 1835, var vinnukona í Assistentshúsi í Fróðársókn 1840.
Þau Carl giftust 1843.
Ingibjörg eignaðist andvana dreng 25. ágúst 1845.
Þau Carl fluttust til Eyja 1845 og bjuggu í fyrstu í Sjólyst.
Carl varð verslunarstjóri Juliushaabverslunarinnar, (síðar Tanginn) 1846 og bjuggu þau þar síðan meðan Carli entist líf.
Ingibjörg ól 8 börn í Eyjum, missti fyrsta barnið úr ginklofa, en 7 börn komust á legg.
Carl lést 1861.
1861 var Ingibjörg enn í Juliushaab. Þar var með henni Marie Sophie Fridrikke 14 ára. Hún fluttist til Kaupmannahafnar 1862.
Ingibjörg var búsett í Túni 1862 með börnin Hansine, Hans Peter, Carl Axel og Harald Ludvig. Jóhanne Amalie var þá tökubarn í Garðinum og Vilhelmine Juliette var í Juliushaab.
1863 voru hjá henni Hansine, Vilhelmine og Harald, en Carl Axel var í Juliushaab, Hans Peter á Ofanleiti og Johanne í Garðinum.
1867 var Harald einn hjá henni. Hin börnin voru í fóstri nema Johanne, hún var vinnandi í Garðinum.
Vinnukona í Túni hjá Ingibjörgu var Guðrún Þórðardóttir, síðar húsfreyja þar, kona Jóns Vigfúsar Vigfússonar bónda.
Ingibjörg bjó í Túni til ársins 1868, er þau Guðrún og Jón Vigfús fengu jörðina til ábúðar.
Ingibjörg fékk að búa í Landlyst síðari hluta árs 1868, en 1869 var Þorsteinn læknir þangað kominn og Ingibjörg fékk inni með Harald í Jónshúsi, og 1870 var hún húskona í Árnahúsi með Harald hjá sér, 1871 og 1872 ekkja til heimilis á Löndum, 1873 til heimilis í Helgahjalli, en Haraldur var á þeim árum niðursetningur í Juliushaab. Hún var kaupmannsekkja á Vilborgarstöðum 1875 og enn 1880.
Hans Peter fórst við rekagang í desember 1877.
Ingibjörg var húskona á Vilborgarstöðum 1880 og þar bjó einnig Carl Axel Möller sonur hennar, beykir, 21 árs. Á Löndum bjó hún 1882, er hún fluttist með Carli Axel syni sínum til Reykjavíkur og síðan til Keflavíkur á Reykjanesi. Þar var hún hjá Carli 1890.
Ingibjörg lést 1899.

Maður Ingibjargar, (1843), var Carl Ludvig Möller verslunarstjóri, f. 1816, d. 7. júlí 1861.
Börn þeirra hér:
1. Andvana drengur fæddur 25. ágúst 1845.
2. Friðrik Vilhelm Möller, f. 17. nóvember 1846, d. 25. nóvember 1846 úr ginklofa.
3. Maria Sophie Friðrikke Möller, f. 28. október 1847, fluttist til Kaupmannahafnar 1862.
4.Johanne Amalie Christiane Möller saumakona, f. 20. janúar 1850, d. 18. apríl 1914.
5. Vilhelmine Juliette Möller, f. 5. maí 1852. Hún var vinnukona í Eystri-Skógum u. Eyjafjöllum 1880.
6. Hansína Möller húsfreyja í Reykjavík, f. 28. júní 1854, d. 20. ágúst 1940.
7. Hans Peter Vilhelm Möller vinnumaður á Ofanleiti, f. 30. júní 1856, d. 21. desember 1877.
8. Carl Axel Möller símstjóri, f. 8. febrúar 1859, d. 14. nóvember 1937.
9. Harald Ludvig Möller trésmiður, kaupmaður, f. 14. apríl 1861, d. 21. september 1931.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.